Málsaga
Samhljóðabreytingar
1. Hver er munurinn á sérhljóðum og samhljóðum?
En lokhljóðum og önghljóðum?
2. Greinið þrjú afbrigði á máli sem
tengjast á mismunandi framburði samhljóða og eitt
sem byggist á mismunandi framburði sérhljóða.
3. Finnið tíu orð í eftirfarandi texta þar
sem samhljóðar eru bornir fram með öðrum hætti
nú en áður tíðkaðist.
Nú hafa Íslendingar sagt sig úr Alþjóða
hvalveiðiráðinuu og líkar það mörgum
vel en öðrum illa eins og gengur. Ýmsir segja að
það sé hreinn og beinn dónaskapur við sáttmála
Sameinuðu þjóðannna en aðrir fullyrða að
engin önnur leið hafi verið fær. Hrefnuveiðimenn
segja að stjórnvöld séu úti að aka
í þessu máli. Sumir spyrja hvort þetta geti
valdið okkur erfiðleikum á hefðbundnum mörkuðum
við fiskútflutning. Allir vona að farsæl lausn
finnist hið bráðasta. En hvenær það verður
veit enginn. Kannski verða börn okkar, sem nú lifum,
löngu vaxin úr grasi. Eitt er þó víst.
Við verðum að efla þær stofnanir sem annast
rannsóknir á hafsvæðinu umhverfis landið.
Svör við nokkrum spurningum. Ekki
kíkja á svörin fyrr en þið hafið reynt
við spurningarnar.
|