Málsaga
Samhljóðabreytingar Svör við nokkrum spurningum
1. Sérhljóðarnir segja sig sjálfir. A segir
a, e segir e. En ká segir
?
2. Samhljóðadæmin eru harðmæli og raddaður
framburður, hvort tveggja fyrir norðan. Einnig hv-framburður
og rn-framburður á suð-austurhluta landsins. Sérhljóðadæmið
væri þá t.d. einhljóðaframburður Skaftfellinga
eða vestfirska Vestfirðinga.
Athugið að mállýskusvæðin hafa minnkað
mikið síðan Björn Guðfinnsson stundaði rannsóknir
sínar.
3.
Nú hafa Íslendingar sagt sig úr Alþjóða
hvalveiðiráðinuu og líkar
það mörgum vel en öðrum illa
eins og gengur. Ýmsir segja að það sé hreinn
og beinn dónaskapur
við sáttmála Sameinuðu þjóðannna
en aðrir fullyrða að engin önnur
leið hafi verið fær. Hrefnuveiðimenn
segja að stjórnvöld séu úti
að aka í þessu máli.
Sumir spyrja hvort þetta geti
valdið okkur erfiðleikum á hefðbundnum mörkuðum
við fiskútflutning. Allir vona að
farsæl lausn finnist hið bráðasta. En hvenær
það verður veit enginn. Kannski verða börn
okkar, sem nú lifum, löngu vaxin úr grasi. Eitt er
þó víst. Við verðum að efla
þær stofnanir sem annast rannsóknir á hafsvæðinu
umhverfis landið.
|