Ísl 303



 

Ísl 303

Njáls saga
1. – 24. kafli
25. – 45. kafli
46. – 56. kafli
57. – 66. kafli
67. – 74. kafli

75. 81. kafli
82. 112. kafli
113. 132. kafli
133. 159. kafli

Njála
Verkefni 82. – 112. kafla

  • Utanfararsögur Þráins, Njálssona og Hrapps.
  • Viðskipti Þráins og Njálssona á Íslandi.
  • Viðskipti Njáls og sona hans við Höskuld Hvítanesgoða.

1. Hvernig hefur Þráni Sigfússyni verið lýst fyrr í sögunni? Breytist hann á einhvern hátt er á líður og ef svo er hvað eða hverjir valda því? Hvernig kemur hann fram við aðrar persónur sögunnar, t.d. Njálssyni og Hákon jarl?

2. Lýsið Kára Sölmundarsyni þegar hann kemur fyrst við sögu. Hvernig reyndist hann Njálssonum og hvers vegna fór hann til Íslands?

3. Hvers konar maður var Hrappur? Af hverju tók Þráinn við honum, við hvaða aðra persónu í Njálu er honum líkt og hver varð ástkona hans?

4. Hvernig tók Þráinn á móti Njálssonum er þeir heimsóttu hann eftir heimkomuna?

5. Hvað tóku Njálssynir til bragðs er Þráinn neitaði þeim um bætur? Lýsið atburðinum við Markarfljót.

6. Hver urðu mál eftir Þráin Sigfússon? Nefnið þrjú atriði.

7. Hver var Ketill Sigfússon úr Mörk. Hvernig tengist hann öðrum persónum sögunnar?

8. Af hverju tók Njáll Höskuld son Þráins í fóstur. Athugið vel lýsingu Höskuldar, hvernig maður var hann?

9. Hildigunnur Starkaðardóttir er mikill kvenskörungur. Hvernig er henni lýst? Líkist hún einhverjum öðrum konum í Njálu? Af hverju neitar hún í fyrstu að giftast Höskuldi?

10. Athugið vel tengsl Flosa og Hildigunnar og Síðu-Halls og Flosa.

11. Af hverju ráðlagði Njáll öllum út í hött á alþingi 1004?

12. Hvað fannst Skarphéðni, elsta syni Njáls, um það er Njáll lætur Höskuldi í té goðorðið í Hvítanesi. En Merði Valgarðssyni?

13. Af hverju er Höskuldur, sonur Njáls og hjákonu hans Hróðnýjar, drepinn?

14. Hvað fannst Valgarði gráa um son sinn er hann kom heim frá útlöndum? Hvaða ráð gaf hann syni sínum?

15. Hvernig tókst Merði að vingast við Njálssyni, Kára og Höskuld? Hvað fannst Njáli um þá vináttu?

16. Af hverju drepa Njálssynir Höskuld Hvítanesgoða? Hvernig leist Njáli á það?

© Íslenskudeild FÁ