Ísl 303



 

Ísl 303

Njáls saga
1. – 24. kafli
25. – 45. kafli
46. – 56. kafli
57. – 66. kafli
67. – 74. kafli

75. 81. kafli
82. 112. kafli
113. 132. kafli
133. 159. kafli

Njála
Verkefni 67. – 74. kafla

  • Viðskipti Gunnars við Þorgeir Starkaðarson og Þorgeir Otkelsson

1. Þorgeir Otkelsson er kynntur til sögunnar í 67. kafla. Hvaða eiginleiki á eftir að reynast honum afdrifaríkastur?

2. Hvers konar menn eru Mörður og Þorgeir Starkaðarson og hvað ræður gjörðum þeirra?

3. Eru Gunnar og Kolskeggur með fullkomlega hreinan skjöld í því sem lýtur að sáttunum við þá Þorgeir Starkaðarson og Otkelsson?

4. Mörður notar sér ráðgjöf Njáls til að klekkja á Gunnari. Hvenær gaf Njáll þau ráð sem Mörður notar? Hvað merkir að vega tvisvar í sama knérunn og hvernig tengist það gangi mála í sögunni?

5. Þeir Þorgeir sofna allir í aðför að Gunnari. Hvernig er hægt að skýra slíka fákænsku?

6. Njáll og Mörður eru báðir góðir lögfræðingar. En hvor hefur betur og hvers vegna?

7. Gunnar hlýtur góðar gjafir af Ólafi pá, frænda sínum, þar á meðal Sám. Hvaða umsögn fær Sámur? – Skráið hjá ykkur örlög Sáms síðar í sögunni.

8. Enn kemur atgeirinn við sögu og nú með öðrum hætti en áður. Hvað er sérstakt við það sem nú gerist?

9. Er eitthvað í bardaga Gunnars við þá Þorgeir Starkaðarson og Þorgeir Otkelsson sem minnir á bardagann við Otkel áður?

10. Er eitthvað í orðum Gunnars í þessum köflum sögunnar sem hægt er að túlka sem ofmetnað?

11. Þegar Njáll talar við Gunnar í 73. kafla um að nú hafi hann vegið tvisvar í sama knérunn ítrekar hann annað ráð sem hann gaf einnig í fyrra skiptið. Hvert er það ráð og hvernig tekst Gunnari að fara eftir því síðar?

12. Hvers vegna er ekki hægt að sættast líkt og venjulega eftir að Gunnar hefur vegið Þorgeir Otkelsson? Hvers vegna hlýtur Gunnar svona harðan dóm?

© Íslenskudeild FÁ