Ísl 303



 

Ísl 303

Njáls saga
1. – 24. kafli
25. – 45. kafli
46. – 56. kafli
57. – 66. kafli
67. – 74. kafli

75. 81. kafli
82. 112. kafli
113. 132. kafli
133. 159. kafli

Njála
Verkefni 113. – 132. kafla

  • Eftirmál eftir Höskuld
  • Njálsbrenna, leit að brennumönnum, uppgröftur beina

1. Hvers vegna lendir Ketill í Mörk á milli tveggja elda eftir dauða Höskuldar Þráinssonar?

2. Hvaða höfðingjar eru kynntir til sögunnar í köflum113 – 114.

3. Hver eru fyrstu viðbrögð Flosa Þórðarsonar við dauða Höskuldar Hvítanessgoða?

4. Hvaða ráð notar Hildigunnur til að hvetja Flosa til hefnda?

5. Hvernig tengist Ingjaldur á Keldum deiluaðilum? En Flosa? Hvaða afstöðu tekur hann þegar á reynir og hvers vegna?

6. Hvaða álit hefur Flosi á Grana Gunnarssyni?

7. Hvert leita Njálssynir þegar þeir hafa virt ráð föður síns að vettugi? Athugið í því sambandi hver sagði, við hvern og af hvaða tilefni?: „Þá munt þú best gefast, er mest liggur við.”

8. Í köflum 119 og 120 er Skarphéðni vel lýst. Finnið setningar sem lýsa útliti hans, tilfinningum og skilningi hans á því að hann hefur unnið níðingsverk.

9. Hvar leita Njálssynir og Ásgrímur liðveislu í vígsmálinu? Hverjir lofa stuðningi og hverjir neita? Hver á stærstan þátt í ákvörðum þeirra?

10. Hvað telur Skarphéðinn helst ámælisvert í hegðan Þorgeirs háks?

11. Í kafla 121 er Mörður afhjúpaður svikari og þá er lagaleiðin Flosa lokuð. Hvað er þá til ráða?

12. Flosi sýnist ætla að svínbeygja Skarphéðin eða drepa ella. Hvaða dóm leggið þið á aðferð Flosa er hann freistar Skarphéðins? Hvað ræður viðbrögðum Skarphéðins? Hvor þeirra er meiri maður að ykkar mati á þessari stundu?

13. Finnið dæmi um forspá í köflum 118 – 124. Hvað má kalla þá atburði sem lýst er í kafla 125 og 127?

14. Hvaða ályktun má draga af samtali þeirra feðga á hlaðinu á Bergþórshvoli í kafla 128 um samskiptin þar á bæ? Hvers vegna gengur Skarphéðinn inn þótt hann viti að hann verður brenndur inni?

15. Hvers vegna segir Ketill úr Mörk: „Mikill harmur er að oss kveðinn, er vér skulum svo mikla ógæfu saman eiga.“

16. Hvers vegna vill Skarphéðinn ekki hlaupa út á undan Kára? Er það stolt, óvissa eða löngun til að friðþægja fyrir níðingsverk sitt?

17. Hvers vegna hafði Ingjaldur á Keldum fyrirgert lífinu að mati Flosa og manna hans?

© Íslenskudeild FÁ