Njála
Verkefni 46. 56. kafla
- Viðskipti Gunnars og Otkels
1. Gissur hvíti, Geir goði og Mörður Valgarðsson
eru allir goðar. Er virðing þeirra og styrkur í samfélaginu
sá sami?
2. Hvernig má skýra að Otkell vill ekki selja Gunnari
mat og hey en býður honum þræl til kaups? Athugið
ólík viðbrögð Bergþóru og Njáls
við hegðun Otkels.
3. Er hægt að kalla einhverja persónu í þessum
köflum illmenni? Ef svo er, hver er það og hvers konar
umsögn fær persónan í kynningunni?
4. Þjófnaður taldist svívirðilegur glæpur
á vígaöld. Hvað rekur Hallgerði til að
gerast þjófur og bera stolna matinn á borð fyrir
gesti?
5. Gunnar óvirðir Hallgerði í fjölmenni í
annað sinn. Hvað líður um huga lesanda er hann les
þessa frásögn og minnist fyrri kinnhesta? Hvað finnst
ykkur um þessa framkomu Gunnars við eiginkonuna?
6. Eiga Mörður og Otkell eitthvað sameiginlegt? Hvað
er ólíkt með þeim?
7. Hvers vegna tekur Skammkell að sér að ganga á
fund Geirs goða og Gissurar hvíta? Var það vinargreiði
eða gekk honum eitthvað annað til? Hvernig gekk honum að
svara fyrir gerðir sínar?
8. Kaflar 51, 56, 66 og 70 enda allir á svipuðum orðum.
Hvaða hlutverki gegna þessar endurtekningar?
9. Er eitthvað ósennilegt við lýsinguna á
því þegar Otkell ríður á Gunnar ofan?
Hvaðan er rógur sá er nú fer af stað um Gunnar
runninn? Athugið viðbrögð Runólfs í Dal
við honum og hvað ráða má um manngerð hans
af þeim.
10. Í kafla 54 koma kostir atgeirsins í ljós.
Hvaða forspá tengist honum?
11. Gunnari þykir miður að fella Hallbjörn hinn hvíta.
Er maklegt að hann skuli falla fyrstur? Hvað hafði hann lagt
til í málanna?
12. Skýrið viðbrögð Hallgerðar og Marðar
í 54. kafla.
13. Hvað eg veit, segir Gunnar, hvort eg mun því
óvaskari maður en aðrir menn sem mér þykir
meira fyrir en öðrum mönnum að vega menn. Hvað
er hægt að lesa úr þessum lokaorðum 54. kafla.
14. Hvaða heilræði gefur Njáll Gunnari í
55. kafla. Takið vel eftir þegar minnst er á þessi
heilræði síðar í sögunni.
© Íslenskudeild FÁ
|