Njála
Verkefni 75. 81. kafla
- Ungir menn halda utan en Gunnar snýr aftur. Athugið hverjir
fóru utan sumarið sem Gunnar snéri aftur.
1. Hvað veldur því að Gunnar rýfur sætt
sína? Tilviljun, búmannstryggð við jörðina,
ættjarðarást, ást á Hallgerði, ofmetnaður,
ofbeldislund? (75)
2. Taldi Gunnar það dóm forlaganna að hesturinn
hnaut? (75)
3. Er hugsanlegt að afstaða höfundar birtist í ummælum
Kolskeggs við skilnað bræðranna? (75)
4. Hvers vegna er Hallgerður ánægðari með bónda
sinn nú en fyrr í sögunni? Hefur hún breyst
eða hann? (75)
5. Gunnar þiggur boð Ólafs pá fyrst en fer svo
hvergi. Hvaða skýring gæti verið á því?
(75)
6. Hvers vegna storkar hann óvinum sínum með því
að sækja alla mannfundi?(75)
7. Er umhyggja Njáls og Gunnars gagnvart sonum sínum bundin
vantrausti? (75)
8. Veldur synjunin um hárleppana falli Gunnars ? Hvernig ber að
skilja orð Hallgerðar: hirði ég aldrei hvort
þú ver þig lengur eða skemur? (77)
9. Hvaða hvatir réðu þátttöku þeirra
Gissurar og Marðar að aðförinni að Gunnari? Hvað
lögðu þeir til mála? Ath. sérstaklega orð
Gissurar.(77)
10. Hvað tákna ummæli Rannveigar: Að heldur
tveim, að ég mundi veita yður öllum? (77)
11. Hvers vegna fer Hallgerður að Grjótá en ekki
vestur í Dali til ættmenna sinna eftir fall Gunnars? Hverjir
bjuggu á Grjótá og hvar er sá bær? (78)
12. Hvernig stendur á því að henni er vært
í Fljótshlíðinni þrátt fyrir gerðir
sínar? (78)
13. Skarphéðinn hlífir Merði þó hann
eigi kost á að drepa hann. Hvaða skýring gæti
verið á því? Hverja höfðu þeir
Högni drepið áður en þeir fóru að
hitta Mörð? (79)
14. Mörður er látinn greiða allan kostnað eftir
dráp Gunnars á Hlíðarenda. Er það réttlátt
þar sem Gunnar hafði fyrirgert lífi sínu? Bendir
eitthvað til þess að Merði svíði þessi
málalok? (80)
15. Hvor þeirra bræðra, Gunnar eða Kolskeggur, ætli
að hafi verið þóknanlegri þjónum kristinnar
miðaldarkirkju? Munið hvenær sagan er skrifuð!
© Íslenskudeild FÁ
|