Njála
Verkefni 133. 159. kafla
- Inngangur; undirbúningur brennumála.
- Brennumálin og bardagi á alþingi.
- Hefnd Kára og Þorgeirs.
- Hefnd Kára og Bjarnar úr Mörk.
- Utanfarir, Brjánsbardagi, suðurgöngur og loks sættir.
1. Draumur Flosa er forspá og vitnar um sterka örlagatrú.
Hvað tákna þagnirnar á milli þess að
jötunninn kalllar á menn?
2. Hvaða aðferðum beitir Flosi í liðsbóninni
og hvaða árangri nær hann? (133)
3. Hvers vegna leggur Flosi meira kapp á að afla liðs
en lögfræðings og hvers vegna er er Mörður látinn
sækja vígsmálið á hendur Flosa? (135)
4. Fótarmeini Þórhalls er lýst kímilega
en meinið reynist örlagaríkt. Hvernig? (135)
5. Hver vegna óvirðir Flosi Ásgrím Elliða-Grímsson?
Skýrið gerðir Ásgríms.(136)
6. Er hringurinn sem Flosi færir Eyjólfi Bölverkssyni
múta eða málafærslulaun? (138)
7. Hvað veldur því að sóknin í brennumálinu
ónýtist fyrir fimmtardómi: rangur málatilbúningur,
slæleg framganga Marðar, fjarvera Þórhalls, slægð
Eyjólsf? (144)
8. Hvers vegna sættist Ásgrímur við Flosa? Flosi
sættist við alla sem hann nær sáttum við, tekur
algerum sinnaskiptum, sættir sig við örlögin í
stað þess að láta kappgirni og metnað ráða
gerðum sínum? Hvaða ástæður teljið
þið líklegastar: hræðsla, samviskubit, hyggindi,
göfugmennska, iðrun, áhrif Síðu-Halls, draumurinn?
(145).
9. Hvers vegna gefur Ketill úr Mörk fyrirmæli um flótta
en ríður síðastur undan? (146)
10. Hvað veldur því að nú og oft síðar
í sögunni er brennumaðurinn Flosi hafinn mjög til
vegs en ekki aðrir sem að verkinu stóðu? Hvers vegna
er Flosi látinn óáreittur þótt menn
hans séu hundeltir? (146)
11. Hvers vegna knýr Kári Þorgeir skorargeir til
sátta og sýnir Halli vinsemd en vill ekki sættast
sjálfur?
12. Er Kári að rjúfa tengsl sín við ætt
Njáls er hann afsalar sér fjármunum sínum
og hverfur frá Holti? (148)
13. Hvaða erindi á Björn í Mörk inn í
söguna?
14. Hvaða ástæður valda því að
Björn velur ekki þann kost að flýja frá Kára
fyrir bardagann á Kringlumýri? (151)
15. Hvers vegna vill Ketill nú drepa Kára en aldrei fyrr?
(151)
16. Skýrið svar Kára við spurningu Valgerðar
við frammistöðu Björns? (152)
17. Hvernig bregst Flosi við vandanum sem mætir honum í
Orkneyjum? (153)
18. Hví nota brennumenn ekki tækifærið til að
drepa Kára þegar jarl mælir svo fyrir? Bjargar Flosi
lífi Kára í veislunni í Orkneyjum? (155)
19. Á hvaða stoðum hvíla sættirnar sem gerðar
eru í lok sögunnar? (159)
© Íslenskudeild FÁ
|