Njála
Verkefni 57. 66. kafla
- Viðskipti Gunnars og þeirra Starkaðar undir Þríhyrningi
og Egils í Sandgili
1. Hvaða umsögn fá synir Starkaðar og Egils í
Sandgili? Hvað merkja viðurnefni dætranna? Hvað gera
stúlkurnar í sögunni? Hvernig er fólkið
skylt?
2. Hestaat verður tilefni deilna þeirra Starkaðar og Egils
við Gunnar. En hver er hin raunverulega orsök deilnanna?
3. Hvað má ráða af samtali Njáls og Gunnars
í lok 58. kafla?
4. Börn fæðast þeim Hallgerði og Þorgerði.
Skráið hjá ykkur nöfn þeirra og einkenni
þegar þau eru nefnd, jafnt núna sem síðar
í sögunni.
5. Rýrt mun verða fyrir honum smámennið [
]
og eigi er ráð að hafa færri en þrjá
tugi manna. Svo mælir Sigurður svínhöfði.
Hvað segir þetta okkur um Gunnar og þá sem við
hann deila?
6. Hvað er það í draumi Gunnars fyrir bardagann
við Knafahóla sem gerir það að verkum að
hann vildi að þeir væru fleiri?
7. Kolskeggur og Kolur eigast við í bardaganum og samtal þeirra
er með þeim frægari. Hvað er svona sérstakt
við það og hvað má álykta um hetjuhugsjón
og frásagnarhátt Íslendingasagna af orðum þeirra?
8. Hvað má álykta um Þorgeir Starkaðarson
af orðum hans og gerðum í bardaganum? Er eitthvað sem
minnir á Skammkel áður?
9. Hvernig tengist Mörður Valgarðsson þessum hluta
sögunnar og hvað liggur að baki hjónabandi hans? Hvað
verður að lokum til þess að hann styður Þorgeir?
10. Hvað einkennir málatilbúnað Njáls og
hvað ræður sáttum á þingi?
11. Einn maður lofar að standa ætíð með
Gunnari í deilum og annar að hann muni aldrei vera í
móti honum. Hverjir eru þeir og hví lofa þeir
þessu?
© Íslenskudeild FÁ
|