|
|
|
Egla
Verkefni 1. 27. kafla
Svör Ekki
skoða þau fyrr en þið hafið reynt við spurningarnar
sjálf.
1. Hvar og hvenær hefst sagan? Hvað er að gerast í
Noregi á þessum tíma varðandi konungsvaldið?
2. Athugið ættirnar tvær er að Þórólfi
og Skalla-Grími Kveld-Úlfssonum standa. Hver eru helstu
einkenni ættanna og hvernig birtast þau í þeim
bræðrum?
3. Hver eru viðhorf Kveld-Úlfs og sona hans til hins nýja
sterka konungsvalds? Hafa viðhorfin eitthvað með ættareinkennin
að gera?
4. Hverjir eru vinir Þórólfs? Hvernig auka vináttubönd
og mægðir á frama hans?
5. Rannsakið Hildiríðarsyni, ætt, uppruna og skapferli.
6. Rekið frama Þórólfs. Skýrið hvers
vegna frami hans verður jafnmikill og raun ber vitni. Hvernig tekur
Kveld-Úlfur frama sonar síns?
7. Skýrið vandlega af hverju Hildiríðarsynir rægja
Þórólf. Rekið róginn lið fyrir lið.
Hvað er sennilegt í honum og lævíslegast?
Oft er talað um sagnlist. Má ekki sjá hana í
þessum köflum? Hver eru einkenni hennar hér?
8. Hugið vandlega að persónueinkennum Haralds hárfagra
og Þórólfs Kveld-Úlfssonar. Að hvaða
leyti eru þeir ólíkir? Hvað einkennir þá?
9. Hvað verður Þórólfi að falli? Minnist
nú orða Kveld-Úlfs.
10. Rekið hvernig Kveld-Úlfur og Skalla-Grímur hefna
Þórólfs.
11. Skoðið vandlega hjónabönd Sigríðar
á Sandnesi. Hverjir eru menn hennar og af hverju giftist
hún þeim? Hvernig var stofnað til hjónabands á
þessum tíma? Finnið hliðstæður síðar
í sögunni.
12. Teiknið mynd af Skalla-Grími og félögum á
konungsfundi eftir fall Þórólfs.
© Íslenskudeild FÁ
|
|
|