| Hagnýtar upplýsingar VerkefnaskilNemendur eiga að ljúka öllum smærri og stærri 
        verkefnum til að fá að fara í lokapróf. Þó 
        er hugsanlegt að í sumum áföngum þurfi nemendur 
        einungis að skila ákveðnum hluta verkefna.
 DyslexiaNemendur sem greindir hafa verið með lestrar- og skriftarörðugleika 
        (dyslexíu) og aðrir nemendur með skynjunarörðugleika 
        eiga rétt á:
 
        lengri próftímaað fá próf lesin inn á hljóðsnældurað fá próf lesin fyrir sigað fá próf með stærra letriAðstoð gæti einnig verið með öðrum 
          hætti og færi þá eftir þörfum og 
          óskum hvers og eins.  DreifnámDreifnám (blanda af venjulegum kennslustundum og fjarkennslu) hefur 
        verið til staðar í nokkrum áföngum í 
        íslensku sem og öðrum greinum í FÁ. Gert 
        er ráð fyrir að nemendur vinni hluta verkefna sinna gegnum 
        vef íslenskudeildar og með tölvupósti. Nemendum 
        er ætluð ein kennslustund (60 mínútur) á 
        viku til þessara verka í þriggja eininga áfanga 
        en ein kennslustund (40 mínútur) á vikur í 
        tveggja eininga áfanga. Mikilvægt er að verkefnum sé 
        skilað á tilsettum tíma samkvæmt fyrirmælum 
        á kennsluáætlun. Gætið þess að 
        fara ekki fram yfir þann frest án þess að gera 
        kennara grein fyrir málum.
 |