| Ísl
			613Skáldsögur og almenn bókmenntafræði
Undanfari:
			15 eininga kjarni í íslensku Áfanginn
			er kenndur á vorönn. Í
			áfanganum kynnast nemendur þróun íslenskra
			skáldsagna og smásagna og fá tækifæri
			til að kynnast þýddum bókmenntaverkum.
			Nemendur þjálfast í greiningu verka og lestri
			fræðigreina um bókmenntir. Þeir gera grein
			fyrir lestrarreynslu sinni munnlega og skriflega. Nemendur
			skulu við lok annar geta fjallað af skilningi og þekkingu
			um íslenskar skáldsögur, einkum formgerð
			þeirra, en kannast jafnframt við þróunarsögu
			þeirra. Nemendur
			skulu við lok annar hafa unnið margvísleg smærri
			verkefni þar sem þeir leita að upplýsingum
			um skáldsögur og höfunda þeirra á
			interneti og í bókum og skilað þeim til
			birtingar á vef. Einnig eiga þeir að hafa tekið
			þátt í umræðu um bókmenntir á
			póstlista. Nemendur
			skulu við lok annar hafa lesið fjórar skáldsögur
			og hafa flutt fyrirlestur um hvert verk. Nemendur
			skulu við lok annar hafa þjálfast í að
			semja vandaða fyrirlestra eftir viðukenndum reglum. Enn
			fremur skulu þeir geta flutt fyrirlestur á
			áheyrilegan hátt. |