Þyrnar og rósir
Sýnisbók íslenskra bókmennta á 20.
öld
Vandamál líðandi
stundar I. hluti
Raunsæi á fjórða áratugnum (1930 –
1940)
Munið eftir að lesa stílfræðina
ef þið skiljið ekki einhver hugtök
Verkefni: Halldór Laxness
Alþýðubókin
1. Hvað er það í fari Íslendinga
sem Halldór Laxness gagnrýnir og telur að betur mætti
fara?
2. Hvaða aðferð beitir hann til að ná athygli
og tilætluðum áhrifum?
Verkefni: Halldór Stefánsson
Hégómi
1. Bentu á nokkur helstu einkenni félagslegs
raunsæis í sögunni.
2. Nefndu dæmi um notkun tákna í sögunni.
3. Nefndu dæmi um háð í sögunni.
4. Lýstu gömlu konunni. Hvernig hefur lífshlaup hennar
verið?
Verkefni
Lestu eftirfarandi ljóð: Dagurinn kemur (94),
Hin hljóðu tár (100) og Morgunsöngur (104)
1) Gerðu grein fyrir formi ljóðanna og
samhengi þess við ritunartíma þeirra.
2) Hvert er efni ljóðanna? Hvernig tengist það
ritunartíma þeirra?
3) Bentu á dæmi um tákn í ljóðunum.
Gerðu stutta grein fyrir myndmáli og málfari ljóðanna.
4) Hvað er sameiginlegt með ljóðunum?
5) Hver er afstaða höfundanna til frelsis, samanborið við
nýrómantísku skáldin?
Gamaldags raunsæi?
Verkefni: Guðmundur G. Hagalín
Kristrún í Hamravík (95 –
99)
Hver er ytri tími sögunnar? Rökstyddu!
Lýstu stuttlega málfari Kristrúnar.
Nefndu dæmi máli þínu til stuðnings.
Hvað má ráða af sögunni
um stöðu kvenna á þessum tíma?
Hver heldur þú að málalokin
verði hjá Anítu? Rökstyddu mál þitt!