Ísl 403



 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ísl 403

Bókmenntasaga
1550 – 1750
Upplýsing
Rómantík
Raunsæi

 

 

Verkefni
Hallgrímur Pétursson

  • Skoðið stílfræðina til að auðvelda ljóðlesturinn.

Svör. Ekki kíkja fyrr en þið hafið reynt að svara.

1. Heilræðavísur, 34. bls. í bókmenntasögunni.–- Hvaða uppeldisþættir birtast í vísum Hallgríms? Hvejir þeirra halda gildi sínu enn þann dag í dag og hverjir hafa dottið upp fyrir? Hvar og hvernig tengist uppeldi og trú?

2. Leirkarlsvísur, 39. bls. í bókmenntasögunni. – Gerið grein fyrir myndmáli kvæðisins og útskýrir hvernig myndmál og trú haldast í hendur.

3. Um dauðans óvissan tíma, 223. bls. í Orminum langa. – Gerið grein fyrir myndmáli 1. og 3. erindis. Skýrið hugsunina í 2. og 4. erindi. Hvaða skoðun birtist bæði í 3. og 5. erindi? Útskýrið trúarskilninginn í 7. erindi.

4. 25. Passíusálmur, 215. bls. í Orminum langa.

  • Á 38. bls. í bókmenntasögunni er texti úr Nýja-testamentisþýðingu Odds Gottskálkssonar. Finnið dæmi um líkt orðalag í 25. Passíusálmi.
  • Hvar lýkur endursögn biblíutexta og hvar byrjar útlegging?
  • Finnið erindi þar sem sagt er frá brottför Adams og Evu úr Paradís.
  • Finnið erindi þar sem talað er um höfuðbúnað og klæðnað: 1) Jesús, 2) Adams og Evu og 3) manna. – Gerið grein fyrir hvernig Hallgrímur tengir þessi fyrirbæri saman.
  • vera inni og að vera úti. Finnið alla staði í sálminum þar sem inn og út er notað og athugið hvaða orð fylgja þeim hverju sinni. Útskýrið hvernig Hallgrímur notar þessa hugmynd í tengslum við 1) Jesús, 2) Adam og Evu og 3) mennina og hvernig þetta tengist erfðasyndinni og fórnardauða Krists.
  • Lesið nú fjögur síðustu erindi Um dauðans óvissan tíma – og lifið heil.

5. Í bókmenntasögunni eru nokkrar þjóðsögur tengdar Passíusálmunum (37. og 42. bls.). Útskýrið skilaboðin og gamansemina sem felst í sögunum.

© Kristinn Kristjánsson