Ísle2bs05/ Ísl 403/

 

Kennari: Eiríkur Páll Eiríksson

senda    skilaboð í Moodle

Leslisti vorannar 2018

 

Námsáætlun vorannar 2018

 

Til að skilja námsáætlunina þarf nemandi að skoða síðuna í Moodle og vita hvað er a) gagnvirkt próf, b) textaverkefni, c) spurningar úr Ísl. bókm. / bókmenntasögu.

 

 

1. Lota 27. jan.- 18. feb. lærdómsöld 1550 - 1750

Viðfangefni: Íslenskar bókmenntir, bls. 9. – 32 + gagnvirkt próf úr þessu efni i Moodle

 

Íslenskar bókmenntir, bls. 33. – 59 + gagnvirkt próf úr þessu efni i Moodle

 

Textar í Orminum langa úr efni lærdómsaldar skv.leslista,

stuðningur við lestur af textaverkefnum lærdómsaldar í Moodle

 

Ítarefni um viðfangsefni lærdómsaldar er á mosagrænum fleti í Moodle

 

2. Lota 19. feb. – 4. mars upplýsingaröld 1770 – 1830

Viðfangefni: Íslenskar bókmenntir, bls. 63. – 73

gagnvirkt próf úr þessu efni i Moodle

Textar í Orminum langa úr efni upplýsingaraldar skv. leslista,

stuðningur við lestur af textaverkefnum upplýsingaraldar í Moodle

Ítarefni um viðfangsefni lærdómsaldar er á gulum fleti í Moodle

 

10 – 11. mars Lokapróf í námsefni lærdóms- og upplýsingaraldar. Námsefni nær eingöngu úr Orminum langa sbr. leslista. Gæta verður þess að lesa þar um alla höfunda sem eru á leslistanum og um tímabilin lærdómsöld og upplýsingu. Fara vel yfir lausnir og ábendingar textaverkefna.

 

3. Lota 12. mars– 30. mars Íslandsklukkan eftir Halldór Laxness

Lesa á alla bókina og taka 3 gagnvirk próf og lokapróf úr bókinni á Moodle. Bókin skiptist í þrjá hluta: Íslandsklukkan, Hið ljósa man og Eldur í Kaupinhafn og er eitt gagnvirkt próf úr úr hverjum hluta í Moodle en lokapróf er úr allri bókinni, líka í Moodle.

 

31. mars – 1. apríl. Lokapróf úr allri Íslandsklukkunni

 

4. Lota 2. apríl – 21. apríl rómantík 1830 – 1880

Viðfangefni:  Íslenskar bókmenntir, bls. 77. – 88 + gagnvirkt próf úr þessu efni i Moodle

Viðfangefni: Íslenskar bókmenntir, bls. 89. – 104 + gagnvirkt próf úr þessu efni í Moodle

Textar í Orminum langa úr efni rómantíkur skv. leslista,

stuðningur við lestur af textaverkefnum rómantíkur í Moodle

Ítarefni um viðfangsefni rómantíkur er á grænum fleti í Moodle

 

5. Lota 22. apríl – annarlok. raunsæi 1880 – 1900

Viðfangefni: Íslenskar bókmenntir, bls. 107. – 114 + gagnvirkt próf úr þessu efni í Moodle

Textar í Orminum langa úr efni raunsæis skv. leslista,

stuðningur við lestur af textaverkefnum raunsæis í Moodle

Ítarefni um viðfangsefni raunsæis er á sægrænum fleti í Moodle

 

Lokapróf áfangans í desember er skriflegt í Fjölbrautaskólanum við Ármúla eða á öðrum þeim stað sem nemandi semur um við fjarnámsstjóra skólans. Námsefni til lokaprófs er nær eingöngu í Orminum langa úr rómantík og raunsæi skv. leslista. Gæta verður þess að lesa þar um alla höfunda sem eru á leslistanum og um stefnurnar rómantík og raunsæi auk þeirra texta sem tilgreindir eru á leslistanum, bæði ljóð og sögur. Fara vel yfir lausnir og ábendingar textaverkefna.

Öllu öðru námsefni á að vera lokið.

 

 

Námsmat

  • Krossapróf/verkefni í bókmenntasögu, alls 15%
  • Miðannarpróf (lærdómsöld og upplýsing í bókmenntasögu og textar á leslista í Orminum langa) 20%
  • 3 krossapróf úr Íslandsklukkunni 10%
  • Lokapróf úr Íslandsklukkunni 15%
  • Lokapróf í annarlok (rómantík og raunsæi: textar, höfundar, stefnur skv. leslista úr Orminum langa) 40%

ATH. Til að standast áfangann þarf að ná 4,5 í prófseinkunn á skriflegu lokaprófi áfangans í annarlok.