Ísl 403
Bókmenntasaga
1550 – 1750
Upplýsing
Rómantík
Raunsæi
|
|
|
Raunsæi
Bókmenntasaga bls. 107 – 114
Ormurinn langi:
- Einar H.
Kvaran: Vonir
- Gestur
Pálsson: Betlikerlingin, Hans vöggur
- Þorgils
gjallandi: Leidd í kirkju
- Hannes
Hafstein: Ást og ótti, Stormur
- Þorsteinn
Erlingsson:Arfurinn, Ef æskan vill rétta þér örvandi hönd;
- Ólöf frá
Hlöðum: Sólstöðuþula
- Stephan G.
Stephansson: Jón hrak
Spurningar (ekki á að senda svörin)
1. Hér og hvar í sögunni Vonum eru lýsingar þar reynt er að lýsa hlutunum
eins og þeir eru en ekki eins og þeir ættu að vera, þeir eru ekki fegraðir.
Hvar kemur það fyrir?
2. Hvernig er myndin af Ólafi í Vonum dregin upp, hvernig sjáum við að hann
er smælingi? Athugið hvernig honum gekk að læra undir ferminguna. Hvers konar
vinnumaður var hann? Og hvernig þróast samband hans og Helgu.
3. Gæti rómantískt skáld hafa ort Betlikerlinguna?
4. Hvað segir um hjónabandið í Leidd í kirkju? Hvað er það sem Guðný kann
ekki við í fari eiginmanns síns? Hvað hefur hún á móti kirkjunni og prestum?
Hvert er hlutskipti Helgu? Hvers vegna yfirgefur Guðný kirkjuna?
5. Hvað gerist ef æskan vill rétta okkur örvandi hönd?
6. Hvert var hlutskipti Jóns hraks? Hvernig hóf hann líf sitt og hvernig
endaði það?
7. Náttúran og mannlífið renna saman í eitt í Sólstöðuþulu, gerið grein fyrir
því.
© Íslenskudeild FÁ
|
|
|