Ísl 303



 

Ísl 303

Handrit og efni
Bragarhættir
Að lesa eddukvæði
Hávamál
Völuspá

Völuspá

Verkefni vísu fyrir vísu

1. Hverjir eru megir Heimdallar?

2. Hver er hinn „mæri mjötviður“ sem völvan talar um í 2. vísu?

3. Hverju er lýst í 3. – 4. vísu?

4. Hvaða starfsemi goðanna er lýst í 6. – 7. vísu? Hverjir sjá um sömu iðju nú á dögum?

5. Hvernig er gullöld goðanna lýst í Völuspá? Vitnið í kvæðið máli ykkar til staðfestingar.

9. – 16. vísu á að sleppa

6. Hvað breyttist er „þrjár komu þursa meyjar ámáttkar mjög úr Jötunheimum“?

7. Hvaða frásögn Biblíunnar samsvarar vísur 17 og 18? Hvað ber á milli?

8. Hvað gerðu „meyjar margs vitandi“ sem frá greinir í 20. vísu?

9. Í vísum 21 – 23 er lýst vandræðum ása. Hver voru þau og hvernig brugðust þeir við?

10. Öðrum ótíðindum hliðstæðum en alvarlegri er lýst í vísum 24 – 26. Að hvaða leyti voru þau verri en hin fyrri? Lausnin varð / Launin voru hörmuleg, hvers vegna?

11. Hvað er átt við þegar talað er um „vá Valhallar“ í vísu 33? – Dragið saman atburðarásina í 31. – 33. vísu.

12. Hverju er verið að lýsa í vísu 34 – 35?

13. Hvernig er vistarverum dánarheima lýst í Völuspá? Vitnið í kvæðið.

14. Hvaða munur er á hugmyndum manna um dauðann í Hávamálum og Völuspá?

15. Í vísum 40 – 43 dregur til tíðinda. Hvernig birtist það?

16. Í vísum 44 – 48 dregur til tíðinda. Hverra?

17. Vísur 50 – 52. Ragnarök eru byrjuð. Hverjir hugsa sér til hreyfings?

18. Við hverja berjast Óðinn, Freyr, Víðar og Þór í Ragnarökum og hvernig fara leikar? Hvar stendur Loki? Endursegið í stuttu máli það sem gerist í ragnarökum.

19. Hver er kallaður „mögur Hróðnýjar“, „Miðgarðs véur“ og „Fjörgynjar bur“?

20. Í vísu 60 verða skil í Völuspá. Hverju er þá byrjað að segja frá? Hvað einkennir ástandið í vísu 60 – 63 og hvert er samhengið við upphafsvísur?

21. Hverjar eru „dyggvar dróttir“ í vísu 65 og hvað verður um þær?

22. Hvað felst í síðustu vísu Völuspár?

24. Hverjan teljið þið vera meginboðskap Völuspár?

© Íslenskudeild FÁ