Ísl 303



 

Ísl 303

Handrit og efni
Bragarhættir
Að lesa eddukvæði
Hávamál
Völuspá

Hávamál

Efnisþættir Hávamála

1. Nefnið nokkra helstu efnisþætti Hávamála og gerið grein fyrir hvernig þeir skiptast niður innan kvæðisins.

2. Hvernig á að taka á móti gestum? Athugið vísur 2 – 7.

3. Hvernig á gesturinn að hegða sér? Athugið vísur 1 – 7.

4. Að treysta á sjálfan sig er gott að mati mælanda. Hvað nefnir hann máli sínu til stuðnings? Athugið vísur 8 – 9.

5. Vit er besta veganestið að mati höfundar Hávamála. Finnið a.m.k. fimm ástæður fyrir því að vitið er talið svo mikilvægt (vísur 6, 8 – 10) og tínið til dæmi um heimskulega hegðun sem ber að varast (vísur 16 – 18 og 22 – 31).

6. Hver eru neikvæð áhrif öldrykkju og hvaða ráðleggingar gefa Hávamál um meðferð áfengis? Athugið vísur 11 – 14, 17 og 19.

7. Lögð er áhersla á að fara að heiman í vísu 18. Hvers vegna?

8. Vináttan er afar mikilvæg á öllum tímum. Hver er boðskapur Hávamála um vináttuna? Að hvaða leyti eru hugmyndir ykkar (nútímafólks) um vináttuna ólíkar?

9. Hvert er viðhorf höfundar Hávamála til fötlunar? Rökstyðjið mál ykkar með tilvísun í kvæðið?

10. Hvaða álit hefur höfundur Hávamála á: a) auðsöfnun, b) mikilvægi þess að vera sjálfbjarga, c) öðlast góðan orstír?

11. Finnið dæmi um 5 – 10 málshætti í kvæðinu. Hver þeirra felur í sér mestan sannleika að ykkar mati?

12. Að lokum skulið þið velta fyrir ykkur hvað hægt er að læra af kvæðinu og hvort boðskapur þess á eitthvert erindi í nútímanum.

© Íslenskudeild FÁ