Íslendingasögur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Íslendingasögurnar eru ásamt konungasögum, þekktustu
miðaldabókmenntir Íslendinga. Þær eru um fjörutíu talsins og mynda saman einn af sex flokkum fornsagna.
Ritunartími
Fyrstu Íslendingasögurnar voru að öllum líkindum ritaðar öðru hvoru
megin við aldamótin 1200, en þær síðustu við lok sagnritunarskeiðsins undir
1350. Flestar voru þær þó líklega skrifaðar á 13. öld.
Skoðanir á aldri eru meðal annars tengdar hugmyndum um uppruna þeirra.
Þrettánda öldin er upplausnartími þjóðveldisins og má sjá þess víða stað í
sögunum að varað er við erlendu konungsvaldi og upplausn ætta.
Sögurnar eru allar án höfundarnafns og einungis varðveittar í
eftirritum, þ.e. ekkert handrit er varðveitt sem gæti verið frumrit
viðkomandi sögu.
Uppruni sagnanna
Þrjár meginkenningar eru um uppruna sagnanna:
- Sagnfestukenningin, en fylgjendur hennar telja
sögurnar vera sannorðar frásagnir sem gengið hafa frá manni til manns
þangað til þær voru skrásettar.
- Bókfestukenningin, að sögurnar séu verk rithöfunda
sem styðjast við munnmæli, ýmis rit og eigið ímyndunarafl.
- Formfestukenningin, að sögurnar séu verk rithöfunda
en formföst munnmæli eru uppistaða í því sem þeir skrá. Þetta er eins
konar málamiðlun milli hinna kenninganna tveggja, hún afneitar ekki
höfundum en leggur jafnframt áherslu á arfsagnir. Formfestumenn greina
sögurnar í sex meginþætti eða frásagnareiningar: 1) Kynning persóna;
2) Átök eða deilur; 3) Ris; 4) Hefnd; 5) Sættir; 6) Eftirmáli.
Af öðrum kenningum má nefna goðsagnakenninguna, en hún gerir ráð
fyrir að sögurnar séu að stofni til goðsagnir eða mjög mótaðar af
goðsagnatengdu efni er tengdist landnámi sem athöfn og stofnun ríkis. Einar Pálsson er upphafsmaður
kenningarinnar.
Efni og stíll
Íslendingasögurnar eru veraldlegar sögur. Þær fjalla
um Íslendinga á tímabilinu frá landnámsöld til fyrri hluta 11. aldar og
gerast að mestu á Íslandi.
Sögurnar einkennast af hlutlægum frásagnarstíl, höfundur tekur ekki
beina afstöðu og tilfinningum persóna er ekki lýst (nema í bundnu máli í
stöku tilvikum). Ef persónum er ekki lýst þegar þær eru kynntar til
sögunnar lýsa þær sér helst sjálfar með verkum sínum og orðum. Annars geta
persónulýsingar orðið æði fjölskrúðugar. Sögumaður leyfir almannaróm
stundum að heyrast, og er það nánast eina tækið sem hann beitir til að
stýra skoðunum lesenda, annað en val á sjónarhorni. Að öðru leyti lætur
hann sem minnst á sér bera.
Textinn einkennist af mikilli notkun hliðskipaðra aðalsetninga.
Stíllinn er því einfaldur og málsgreinar yfirleitt stuttar og hnitmiðaðar,
auk þess sem jafnvægi skapast í frásögninni.
Mikið er um sviðsetningar og samtöl, sem eru allajafna stutt og
einkennast af spakmælum. Tilsvör eru oft meitluð og engu er þar ofaukið. Í
mörgum sagnanna gefa fyrirboðar eða spásagnir til kynna óorðna atburði.
Enginn má sköpum renna, allt er ákveðið fyrir fram og enginn getur flúið
örlög sín.
Samfélag
Samfélag Íslendingasagnanna er goðaveldið eins og það var á Íslandi
fyrstu aldir eftir landám. Það er ættasamfélag þar sem goðorðið gengur í
arf.
Brúðkaup eru til þess að efla karlmanninn og skapa honum ættartengsl
sem nýst geta síðar meir.
Söguhetjurnar eru oftast höfðingjaættar þó það sé reyndar ekki algilt.
Lægra settu fólki bregður fyrir til góðs eða ills, en oftast er það í
aukahlutverki.
Hetjur og manngildi
Það má skipta hetjum Íslendingasagnanna gróflega í tvo flokka. Ljósar
hetjur og dökkar hetjur. Þó eru sumar persónur flóknari en svo að þær geti
fallið í annan hvorn þessara flokka. Ljósar hetjur eru ljósar yfirlitum,
heiðarlegar og seinþreyttar til vandræða. Þær dragast nauðugar inn í átök til
að koma í veg fyrir að skuggi falli á sæmd þeirra. Dökkar hetjur eru dökkar
yfirlitum og oft ófríðar eða beinlínis ljótar. Þær eiga í vandræðum með
sjálfar sig og grípa oft til vopna að fyrra bragði. Þær leggja þannig fram
drýgri skerf til að skapa sín eigin vandræði.
Karlmenn eru langoftast í aðalhlutverkum og sjónarhóllinn er þeirra.
Konur hrinda þó oft atburðarás af stað, þær eru þrætuepli eða hvetja
hetjurnar til stórræða.
Íslendingasögurnar
í stafrófsröð
Glataðar Íslendingasögur
Tengt efni
|