Ísl 303



 

Ísl 303

Egils saga
1. – 27. kafli
27. – 49. kafli
50. – 56. kafli
57. – 59. kafli
60. – 68. kafli
69. – 78. kafli
79. – 90. kafli

Egla
Verkefni 60. – 68. kafla

  • Skoðið landakort á 325. bls. og ættartré á 328. bls.

1. Skalla-Grímur andast. Hvernig skýrir þið tilfæringar Egils við að ná karlinum dauðum úr bænum að Borg? – Hvar er Skalla-Grímur heygður? Hvað varð um allt silfrið hans?

2. Englandsför Egils, þriðja utanferðin. – Hvaða tvær skýringar gefur sagan á utanferð Egils að þessu sinni?

3. Egill gengur á konungsfund í Jórvík. Rifjið upp fyrri sakir hans við konung. Hvað verður honum til bjargar? – Enn deila þau Eiríkur og Gunnhildur vegna Egils. Skýrið af hverju Eiríkur lætur Egil sleppa lífs úr konungsgarði? Er Gunnhildur ekki göldrótt?

4. Hvernig kvæði er Höfuðlausn, hvert er efni þess?

5. Hvaða kostir standa Agli til boða á Englandi hjá Aðalsteini konungi? Af hverju tekur hann ekki boði konungs?

6. Hver er nú konungur í Noregi?

7. Hver var Þorsteinn Eiríksson? Af hverju varð Egill að liðsinna honum? Hvernig tókst til?

8. Enn reynir Egill að fá arf Ásgerðar og nú með hjálp hins nýja Noregskonungs. Af hverju væntir Egill betra gengis í viðskiptum við hann en fyrri konung? Hvernig fer?

9. Egill gengur á hólm og nú við Ljót hinn bleika. Hvernig stendur á því?

10. Enn gengur Egill á hólm og nú við Atla hinn skamma. Hvert er tilefni þeirrar hólmgöngu? Hvernig standa nú arfsmál Egils í Noregi?

© Íslenskudeild FÁ