Líffæra-
og lífeðlisfræði 103
Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Eftir að hafa lesið
8.
kafla í Tortora
átt þú að: Skáletruð blaðsíðutöl vísa til 7. útg.kennslubókar
- Geta lýst
mismunandi gerðum vöðvavefjar, eiginleikum þeirra og hlutverkum
(bls. 173 og tafla
bls.188 / 185 og tafla bls.200). Aðal áherslan er lögð á rákótta vöðva (beinagrindarvöðva)
- Þekkja himnukerfi
rákóttra vöðva (epimycium, perimycium og endomycium) (bls. 185-186)
- Vita hvernig taugaboð framkallar samdrátt í beinagrindarvöðvum hvaðan orkan kemur sem nýtist í vöðvasamdráttinn (bls. 175
/ 186)
- Geta lýst
innri gerð rákóttrar vöðvafrumu (bls. 175-176 / 186-189)
- Geta útskýrt
hvernig boði er miðlað
frá taug til vöðva og hvað gerist í vöðvafrumunni við samdrátt
og slökun (bls. 177-180
/ 189-192). Hér er bíómynd sem sýnir vöðvasamdrátt
- Vita hvernig vöðvinn aflar sér ATP (bls. 181-183 / 194)
- Vita hvað felst í orðinu vöðvaþreyta (fatigue)
og geta rakið mögulegar orsakir hennar (bls. 183 / 194)
- Vita af hverju súrefnisupptaka vöðva er meiri eftir
áreynslu en í hvíld (súrefnisskuld) (bls. 183 / 194-5)
- Vita hvaða áhrif tíðni taugaboða hefur á vöðvasamdrátt (stakur kippur, samlagning og tetanus) (bls.
184 / 196)
- Geta gert
grein fyrir hugtakinu hreyfieining
(motor unit) og þekkja sambandið
á milli stærðar hreyfieininga og nákvæmni hreyfinga (bls. 184 / 196)
- Vita að rákóttar vöðvafrumur eru flokkaðar í þrjá flokka á grundvelli orkuefnaskipta (bls. 184-5
/ 196-197)
- Geta skilgreint
hugtökin vöðvaupptök (origo) og vöðvafesta (insertio) (bls. 188 / 201)
- Þekkja samstarf
vöðva og hugtökin
primus motor (agonisti), antagonisti
og synergisti (bls. 189 / 201)
- Vita að nöfn beinagrindarvöðva
geta verið tengd lögun vöðvans, stærð, staðsetningu, legu vöðvaþráða, hreyfingu eða fjölda vöðvaupptaka (tafla bls. 191 / 203)
- Þekkja latnesk
heiti þeirra vöðva sem
nefndir eru á lista (blaðsíðutöl eiga við 7. og 8. útgáfu af Tortora), staðsetningu þeirra og þá hreyfingu sem þeir valda. Ekki þarf að kunna
upptök og festur vöðvanna. Hér er gagnvirkur vefur þar sem
hægt er að æfa sig og þessi er líka
góður, þessi er frábær, en þessi er þó örugglega bestur! Flott myndrot af m.quadriceps að störfum
Latneskur orðalisti úr 8. kafla
Nöfn vöðva gefin upp á lista,
en auk þess:
Fascia fell
Epimycium vöðvahula
Perimycium vöðvaknippishula
Endomycium vöðvaþráðahula
Sarcomere samdráttareining
Tendo sin
Origo upptök
Insertio festa