Líffæra- og lífeðlisfræði
103
Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Eftir að hafa lesið
3.
kafla í Tortora
átt þú að: Skáletruð blaðsíðutöl vísa til 8. útg. kennslubókar
- Þekkja skiptingu
frumunnar í frumuhimnu,
kjarna og umfrymi (bls. 45 /
49-50)
- Geta gert
grein fyrir byggingu frumuhimnunnar, t.d. með
einfaldri teikningu og
vita hvaða hlutverki mismunandi byggingareiningar
gegna (bls. 46 / 49). Hér er skemmtileg æfing í byggingu frumuhimnunnar.
- Geta gert
grein fyrir helstu flutningsleiðum efna í gegnum frumuhimnuna:
- Flæði (diffusion) (bls.
48 / 51-2):
- Hvaða þættir
hafa áhrif á hraða flæðis?
- Hver er
munurinn á einföldu flæði (simple diffusion) og
flæði með ferjupróteinum (faciliated
diffusion)? (bls. 48 / 52)
- Osmósa:
(bls. 49-50 / 53-4)
- Hvað er
osmótískur þrýstingur?
- Þekkja ísótóníska,
hypertóníska og hypótóníska
lausn
- Virkur flutningur
(active transport) (bls. 50-51 / 55-6)
- Blöðruflutningur (endocytosis-exocytosis) (bls. 51-2 / 56)
- Geta gert
grein fyrir innfrymun (endocytosis) og útfrymun
(exocytosis)
- Þekkja byggingu og hlutverk helstu frumulíffæra í umfrymi: (bls. 52-60 / 56-63)
- Hér er
sniðugur leikur um frumur og frumulíffæri
og á þessari síðu æfir þú þig
að þekkja frumulíffærin. Á Vísindavefnum
getur þú skoðað myndir af frumulíffærum og lesið um starfsemi þeirra og hér er íslensk umfjöllun á Wikipedia
- Þekkja tvær
gerðir frumuskiptinga
(mítósa
og meiósa) og geta borið
þær saman. ( bls. 65-7). Hvaða
frumur skiptast mítósuskiptingu, hvaða frumur skiptast meiósuskiptingu og hver er útkoman? Þekkja meginferli skiptinganna (prófasa, metafasa, anafasa og telófasa). Í þessum leik lærir þú heilmikið
um frumuskiptingar
Ekki þarf
að lesa um próteinmyndun á bls.
60-63 / 64-5
Latneskur orðalisti úr 3. kafla
Extracellular utanfrumu
Intracellular innanfrumu
Exocytosis útfrymun
Endocytosis innfrymun
Phagocytosis agnaát
Pinocytosis frumudrykkja