Líffæra- og lífeðlisfræði 103
Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Skáletruð blaðsíðutöl vísa til 7.
útgáfu kennslubókar
Eftir
að hafa lesið 12.
kafla í Tortora átt þú að:
- Geta útskýrt hvað felst í skynjun
og rakið einkenni og ferli skynjunar (bls. 285 /298 )
- Geta gert grein fyrir húðinni sem
skynfæri (bls. 286-288 / 299-301 ).
- Geta gert grein fyrir
líkamsstöðunemum (proprioceptors) (bls. 289-290 / 302-3)
- Geta gert grein fyrir lyktarskynfærinu
og lyktarskyni. Hvar er lyktarsvæðið á heilaberki? (bls. 290-291 / 303-4)
- Geta gert grein fyrir bragðskyni. Hvaða grunnbrögð finnum við og hvernig dreifist skynjunin yfir tunguna? Hvar er bragðsvæðið á heilaberki? (bls. 291-293 / 304-5)
- Geta greint á milli aðallífæris og aukalíffæra sjónar. Hvernig er lagskipting
augans og hvaða hlutverki gegnir hvert lag?
Hver er munurinn á stöfum og keilum? Ert þú
kannski litblindur?
Hvernig sjáum við þrívídd? Hvað er
blindur blettur?
Hvaða leið fara boðin frá stöfum og keilum til heila?
Hvar er frumsjónsvæðið á heilaberki? (bls. 306-314)
- Geta gert grein fyrir byggingu
eyrans. Hvaða hlutar tilheyra ytra,
mið og innra eyra? (bls. 301-30
/ 314-317). Hvernig
virka heyrnarbeinin? Hvernig
skynjum við mimunandi tíðni? Geta
gert grein fyrir lífeðlisfræði
heyrnar- og jafnvægis (stöðu- og hreyfiskyn).
Hvar eru skynsvæðin á heilaberki? Á
þessari síðu eru góðar
útskýringar á lífeðlisfræði heyrnar og hér er
fínn kennsluvefur
um heyrn.
- Á þessari síðu heilmikið um skynjun. Athugaðu hvað þú finnur.
Engin
latína út 12. kafla!