|
|
|
Eddukvæði Markmið
Nemendur eiga að loknum lestri eddukvæða að
I. hluti Handrit og efni
- vita hvenær eddukvæði voru ort og skráð
- þekkja nafn aðalhandrits eddukvæða (Konungsbók
eddukvæða, Codex Regius)
- þekkja mun goðakvæða og hetjukvæða (yrkisefni)
- vita að eddukvæði eru ein helsta heimild sem til er
um a) norræna goðafræði (ásamt Snorra-Eddu)
og b) germanskan hetjukveðskap (ásamt Völsunga sögu
og Niflungaljóði, sem er þýskt kvæði
frá því um 1200)
II. hluti Bragarhættir
- þekkja mun eddukvæða og dróttkvæða
efnislega (yrkisefni) og formlega (bragareinkenni). Einnig nafn og nafnleysi
skáldanna
- geta bent á einkenni ljóðaháttar í
vísu
- geta bent á einkenni fornyrðislags í vísu
Og síðast en ekki síst!
III. hluti Kvæði
- geta útskýrt vísur: a) geta útskýrt
einstök orð, b) geta tekið saman vísu, c) geta orðað
innihaldið með nútímamáli
- geta greint frá lífsskoðun Gestaþáttar
Hávamála, það er geta greint frá helstu
viðfangsefnum og afstöðunni til þeirra (t.d. gestrisni,
vináttu, vits, öldrykkju, gjafa, hófsemi, reynslu,
samræðna, framkomu, eigna, orðstírs)
- geta greint frá meginsögu Völuspár, geta greint
frá einstökum þáttum þeirrar sögu.
Þekkja goðafræðina sem tengist Völuspá.
- Þekkja einnig helstu persónur og fyrirbæri
- hafa lesið Hávamál (erindi 1 77), Völuspá
og hluta Helga kviðu Hundingsbana II.
© Kristinn Kristjánsson
|
|
|