FÁ ÍSLE2BS05

 

Leslisti

Til lokaprófa á vorönn 2021

Námsmat er í vikunni 28.febrúar – 6.mars

 

LÆRDÓMSÖLD

1. Íslenskar bókmenntir 1550 – 1900 (lærdómsöld): bls. 9-59<ekki á próf miðannar

 

Um eftirfarandi höfunda og verk í Orminum langa á að lesa fyrir miðannarpróf, nokkur stutt verk frá lærdómsöld eru í Ísl. bókm. 1550 -1900:

Textar, höfundar o.fl:

Einar Sigurðsson: Kvæði af stallinum Kristí sem kallast Vöggukvæði (Ormurinn langi, bls. 192-94)

Staðarhóls-Páll: Eikarlundurinn (Ormurinn langi, bls. 190); Blómið í garðinum (Ísl. bókm. bls. 22)

Fiðlu-Björn: Vísur Fiðlu-Bjarnar (Ísl. bókm. bls. 23)

Ólafur Egilsson: Úr Reisubók (Ormurinn, bls. 196-200)

Jón Ólafsson Indíafari: Úr Reisubók (Ormurinn, bls. 202-205)

Steinunn Finnsdóttir: Úr mansöng (Ísl. bókm.  bls. 28)

Hallgrímur Pétursson: Um dauðans óvissan tíma (Ormurinn, bls. 223-26); 25. Passíusálmur (Ormurinn, bls. 215-18); Ölerindi (Ormurinn, bls. 213); Heilræðavísur (Ísl. bókm.  bls. 34); Leirkarlsvísur (Ormurinn, bls. 212)

Árni Magnússon: Úr bréfi til Orms sýslumanns Daðasonar 2. júní 1729 (Ormurinn, bls. 237-38)

Stefán Ólafsson: Meyjarmissir (Ormurinn, bls. 232)

Jón Vídalín: Úr Vídalínspostillu (Ormurinn, bls. 240-42)

Látra-Björg: Fjörður; Staka (Ormurinn, bls. 243)

NB:Lesa upplýsingar um höfunda og verk á undan viðkomandi texta í Orminum. Ekki gleyma að lesa um lærdómsöldina, bls. 183 - 185 í Orminum langa.

 

Upplýsing

2. Íslenskar bókmenntir 1550 – 1900 (upplýsingaröld): bls. 63-73<ekki á prófi miðannar

 

Um eftirfarandi höfunda og verk í Orminum langa á að lesa fyrir miðannarpróf:

Textar, höfundar o.fl:

Björn Halldórsson: Úr Atla (Ormurinn, bls. 249-50)

Eggert Ólafsson: Úr Búnaðarbálki (Ormurinn, bls. 253-56)

Jón Þorláksson: Úr Paradísarmissi (Ormurinn, bls. 261-65)

Magnús Stephensen: Upplýsingin (Ormurinn langi bls. 267)

Jón Steingrímsson: Hvaða tvær bækur skrifaði hann?

Vatnsenda-Rósa: Ísl. bókmenntir bls. 71

 

NB:Lesa upplýsingar um höfunda og verk á undan viðkomandi texta í Orminum. Ekki gleyma að lesa um upplýsingaröldina bls. 245 - 247 í Orminum langa.

 

 

Miðannarpróf er úr Lærdómsöld og Upplýsingu

 

 

RÓMANTÍK

3. Íslenskar bókmenntir 1550 – 1900 (rómantík): bls. 77-104

 

Um eftirfarandi höfunda og verk í Orminum langa á að lesa fyrir lokapróf, nokkur verk eru þó í Ísl. bókm. 1550-1900:

Textar, höfundar o.fl:

Bjarni Thorarensen: Veturinn (Ormurinn, bls. 274-76); Oddur Hjaltalín (Ormurinn, bls. 277-79); Kysstu mig aftur (Ísl. bókm.  bls. 80)

Jónas Hallgrímsson: Ísland (Ormurinn, bls. 303); Gunnarshólmi (Ormurinn, bls. 305-307); Ferðalok (Ormurinn, bls. 308-310) Ég bið að heilsa (Ísl. bókm.   bls. 87)

Vatnsenda-Rósa: Lausavísur (Ormurinn, bls. 284-86)

Kristján Jónsson Fjallaskáld: Haust (Ormurinn, bls. 351); Tárið (Ormurinn, bls. 351)

Sveinbjörn Egilsson: Fljúga hvítu fiðrildin, Fuglinn segir bí, bí bí.

Steingrímur Thorsteinsson: Vorhvöt (Ormurinn, bls. 335-36)

Matthías Jochumsson: Börnin frá Hvammkoti (Ormurinn,bls. 339-340)

Grímur Thomsen: Haustvísa (Ormurinn, bls. 332); Endurminningin (Ormurinn, bls. 333), Á Glæsivöllum (Ormurinn, bls 329-330)

Bólu-Hjálmar: Þjóðfundasöngur 1851 (Ormurinn, bls. 288-89); Sálarskipið (Ormurinn, bls. 289)

NB:Lesa upplýsingar um höfunda og verk á undan viðkomandi texta í Orminum og kaflann um rómantík, bls.269 – 271.

 

RAUNSÆI

4. Íslenskar bókmenntir 1550 – 1900 (raunsæi): bls. 107-114

 

Um eftirfarandi höfunda og verk í Orminum langa á að lesa fyrir lokapróf:

Textar, höfundar o.fl:

Einar H. Kvaran: Vonir (Ormurinn, bls. 385-407)

Gestur Pálsson: Betlikerlingin (Ormurinn, bls. 365); Hans Vöggur (Ormurinn, bls. 366-370)

Þorgils gjallandi: Leidd í kirkju (Ormurinn, bls. 359-363)

Hannes Hafstein: Stormur (Ormurinn, bls. 409); Ást og ótti (Ormurinn, bls. 410)

Þorsteinn Erlingsson: Arfurinn (Ormurinn, bls. 382)

Ólöf frá Hlöðum: Sólstöðuþula (Ormurinn, bls. 379-380)

Stephan G. Stephansson:  Jón Hrak (Ormurinn, bls. 373-76)

 

NB:Lesa upplýsingar um höfunda og verk á undan viðkomandi texta í Orminum og kaflann um raunsæi, bls.353 – 354.

 

Stuðningsefni

Hér er síða með hljóðskrám, ýmsum sögum frá rómantíska- og raunsæistímabilinu:

http://hlusta.is/flokkun/isl_smasogur/index.html

 

5. Glærur um bókmenntastefnur og verkefni úr textum eru á vef. Skoðið viðeigandi verkefni vandlega fyrir próf til upprifjunar.

Einnig eru glærur um bókmenntastefnur, höfunda o.fl. á heimasíðu áfangans (http://www2.fa.is/Islenska2/403/glaerur/index.html) 

http://ww2.fa.is/Islenska/eirikp/isl403/raunsaei-1880.pdf    

 

 

Atriði sem hafa ber í huga við lestur ljóða:

Stílfræði:

a)Hvert er meginefni ljóðsins?

b) Skoðið titilinn í samhengi við innihald. Segir hann eitthvað til um innihaldið?

c) Er einn kjarni í ljóðinu (miðleitið ljóð)  eða leiðir ein hugmynd af annarri (útleitið ljóð)?

d) Ljóðmælandi: Huglægur eða hlutlægur? Koma tilfinningar fram eða er textinn hlutlaus

     lýsing?

e)  Stílbrögð (nánar t.d. í Íslensku eitt)

·       Endurtekningar

·       Andstæður

·       Vísun

·       Þversögn

·       Ýkjur

·       Úrdráttur

Myndmál:

·       Bein mynd

·       Líking

·       Myndhverfing

·       Persónugerving

·       hlutgerving

Bókmenntastefnur og tímabil

Hafið eftirfarandi í huga: Hvernig og með hverjum bárust bókmenntastefnur og –straumar  til Íslands? Hvað einkennir hverja stefnu fyrir sig? Sjást merki (einkenni) tímabilanna glöggt í kveðskap og öðrum skrifum skáldanna? Hvernig?

Úr hvers konar þjóðfélagi eru stefnurnar sprottnar og hver var jarðvegurinn fyrir þær hér heima og hverjar voru undirtektirnar?

Hvað var skrifað og af hverjum og fyrir hverja? (Skoðið vel Lærdómsöldina í byrjun, það sem þá var skrifað var sprottið af þörf fyrir efni tengt nýjum sið í trúarlífi landsmanna. Þær forsendur eru af öðrum meiði en þær sem hrinda af stað seinni tíma stefnum.)