| Fjölbrautaskólinn við Ármúla | |
NámstækniHvernig lærum við?Þegar við vorum lítil lærðum við á umhverfið með því að
Þannig notuðum við öll skynfærin. Ef þú ert hætt(ur) að nota skynfærin við nám ættirðu kannski að prófa það aftur!Leiðinleg eða erfið kennslustundEf þér leiðist í kennslustund eða þér finnst efnið erfitt gæti það verið vegna þess að sú tækni sem kennarinn hefur tileinkað sér við kennslu fellur ekki að þeirri tækni sem þú hefur tileinkað þér sem nemandi. Það er ekki alltaf hægt að krefjast þess að kennarinn breyti tækni sinni og þess vegna verður þú að laga þig að aðferðum hans. Hér eru nokkur ráð:1. Ef þú þarft að hlusta mikið en þér hentar betur myndræn framsetning verður þú að búa til mynd í huganum sem sýnir það sem sagt er við þig. Þú getur líka teiknað hugkort eða myndir á meðan talað er.2. Ef kennslan er myndræn en þú vilt heldur nota orð skaltu skrifa niður athugasemdir sem lýsa því sem sýnt er.3. Ef þér hentar betur það sem er áþreifanlegt en átt að horfa og hlusta getur verið gott að sjá það fyrir sér sem verklega framkvæmd sem sagt er.Nokkur mikilvæg atriðiTil þess að festa efnisatriði í minni er mikilvægt að
Þegar þú ert fastur/föst er nauðsynlegt að vita hvað það er sem þú ert að reyna að muna. Ef þú skilur ekki efnið getur þú ekki tengt það við neitt. Mikilvægt er að íhuga hvaða skynfæri þú ert að nota í námi hverju sinni til þess að geta nýtt þau skynfæri sem ekki eru þegar virk. Ef þú skilur t.d. ekki það sem þú varst að lesa reyndu að
Ef þú ert að reyna að læra að skrifa erfið, erlend orð, nöfn á stöðum, mikilvæga sögulega atburði, efnafræðiformúlu o.s.frv. nægir sennilega ekki að horfa á orðin eða tölurnar - en reyndu eitthvað af þessu:
Til þess að nám skili árangri er mikilvægt fyrir þig að reyna að hafa áhuga á efninu, skilja hvers vegna þú þarft að læra þetta og ætla þér að muna.Minni og námÞegar þú ert að læra eitthvað nýtt finnst þér þú kannski skilja það vel í kennslustundinni en þegar kemur að heimanáminu eða prófinu áttarðu þig á því að þú ert búin(n) að gleyma því sem máli skiptir. Það er sagt algengt að menn gleymi að kvöldi 80% af því sem þeir læra að morgni.Ákveðin skilyrði eru nauðsynleg til þess að þú getir geymt nýjar upplýsingar í minni þínu og náð þeim þaðan þegar þú þarft á þeim að halda:Einsettu þér að muna!Þú verður að beina athyglinni að því sem þú ert að læra. Þú verður að vera ákveðin(n) í því að læra. Ef athygli þín beinist ekki að því sem þú ert að reyna að læra er vonlaust að ætlast til þess að það festist þér í minni. Þú verður að segja við sjálfa(n) þig: Ég mun læra þetta!SkilningurÞú verður að skilja það sem þú ert að reyna að læra. Það er ekki til neins að læra utan að atriði nema þú vitir til hvers þú ætlar að nota þessar upplýsingar.TengingÞú þarft að tengja nýja þekkingu við það sem þú veist fyrir. Ímyndaðu þér að heili þinn sé röð af minniskrókum. Þegar ný þekking bætist við þarf að hengja hana á réttan krók nálægt svipuðum upplýsingum.SkynfæriNotaðu fleiri en eitt skynfæri þegar þú lærir; horfðu, hlustaðu, snertu, skrifaðu, teiknaðu, litaðu, gerðu tilraunir, lestu upphátt, ræddu við einhvern - vertu virk(ur)!Æfing nýrrar þekkingarMikilvægt er að nota strax nýja þekkingu. Skrifaðu lykilorð eftir minni; þjálfaðu nýtt efni sem þú hefur lært í öllum fögum, teiknaðu, reiknaðu o.s.frv. Segðu ömmu, afa, frænku, frænda eða hverjum sem nennir að hlusta hvað þú ert að læra.Sýndu áhugaÞetta getur stundum verið erfitt en ef þú getur fundið einhverja spennandi hlið á verkefninu getur það skipt miklu máli. Mundu hvað það er auðvelt að muna það sem þú lærir þegar það tengist áhugamáli þínu, hvort sem það er kappakstur, fótbolti, dans eða eitthvað annað.Notaðu minniskerfi
Ímyndaðu þér hvítt herbergi
Að setja sér fyrir hugskotssjónir Heimild:
|
|