Byltur geta g þér veitt, gættu að hverju bragði. Mundu að setja aðeins eitt í orðin hugði og lagði.
Gættu vel að einföldum íum í olíum og Svíum og tíum. Ekkert j í kvíum né kríum og klipptu það af níum og tíum.
Greinis skyldu gæta menn. Hann gerir lengri dauðaNN. En settu bara aleitt n í auðveldan og rauðan.
Blessaður, sagði Bangsimon, og bauð mér kaffi. Það er aldrei ufsilon á eftir vaffi.