Fjölbrautaskólinn við Ármúla
 

Sakleysi eftir Ástu Björk Sveinbjörnsdóttur

Skrifaðu ævisögu konunnar sem finnst í lok sögunnar. Láttu koma fram

  • hvar hún ólst upp
  • hvar hún gekk í skóla
  • hvernig unglingsár hennar voru
  • hvað varð til þess að hún endaði svona

Skrifaðu framhald sögunnar. Hvað gerist þegar ungi lögreglumaðurinn fer heim til sín. Láttu koma fram

  • hvernig honum er innanbrjósts við heimkomuna (hvaða tilfinningar bærast innra með honum)
  • hvað segir hann við konuna sína
  • hvernig bregst hann við barninu sínu
  • hvað honum finnst um vinnuna sína
  • hvaða áhrif atburðurinn hefur á líf hans

Þú ert blaðamaður hjá dagblaði og kemur að húsinu rétt á eftir lögreglunni. Þú skrifar síðan grein í blað um atburðinn í blaðið. Mundu að skrifa eins og blaðamaður - gæta hlutlægni. Láttu koma fram

  • hvað gerðist
  • hvenær það gerðist
  • hverjir eru viðriðnir málið - gerendur og fórnarlömb
  • hver er forsaga málsins
  • hvað gæti gerst næst

 

Aðalsíða

©Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir