Fjölbrautaskólinn við Ármúla

Aðalsíða

Glefsur úr ævisögum fólks með dyslexíu

 

DE RERUM NOVARUM

Lestrarörðugleikar Agötu Christie

Glefsur úr grein eftir Lindu Siegel um meinta lesblindu Agötu Christie. Heimildir Lindu: Ýmsar ævisögur höfundarins, sjálfsævisaga hennar og rannsóknir um lesblindu. (Canadian Psychology/Psychologie Canadienne, 1988, 29:2)

 

 

Var Nóbelsskáld Íra, William Butler Yeats, með dyslexíu?

Hér er gróf þýðing þessarar greinar eftir Marylou Miner og Lindu S. Siegel. Dálitlu er sleppt úr textanum, ekki er getið um blaðsíður í bókum og tilvitnanaskrá er sleppt sem sjá má á frumtexta ( Journal of Learning Disabilities, vol.25, number 6, June/July 1992, bls. 372-375).


 

Margareta Strömbom segir sögu sína í bókinni Dyslexi - visst går det at besegra sem kom út í Svíþjóð árið 1999. (Carlssons Bokförlag)

Sænska stúlkan Margareta fæddist árið 1940. Hún gat ekki stundað nám í þeim menntaskóla sem hún vildi vegna dyslexíu en með ótrúlegri seiglu tókst henni að ljúka stúdentsprófi, síðan einkaritaranámi, taka B.A. próf í frönskum háskóla og ljúka að lokum doktorsprófi í félagsvísindum. Hún hefur starfað í ýmsum löndum og notar frönsku og ensku jafnt og móðurmál sitt, sænsku.

Hér má lesa brot úr sögunni.

 

 

Bandaríski pilturinn Girard J. Sagmiller varð fyrir mikilli höfnun í æsku vegna dyslexíu sinnar. Faðir hans vildi ekki sjá hann og skólakerfið brást honum. Systir hans stappaði í hann stálinu og þrátt fyrir gífurlega niðurlægingu heima og í skóla tókst honum að ljúka háskólaprófi. Hann segir sögu sína í bókinni DYSLEXIA MY LIFE - One man's story of his life with a learning disability en hún kom fyrst út árið 1995.

 

 

Ýmsir Íslendingar hafa náð langt þrátt fyrir að hafa þurft að glíma við erfiðleika tengda dyslexíu. Hér eru nokkur dæmi:

Inga Bjarnason leikstjóri (stórt skjal)

(Birt með leyfi Ingu)

.....

Aðalsíða

©Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir