| Verið
velkomin á upplýsingavefinn um dyslexíu.
Vefurinn er í smíðum enda birtist hér einungis fyrsti vísir að honum. Vonandi verður hægt að fylla upp í alla ramma og bæta inn miklu efni eftir því sem tíminn líður. Allar ábendingar um efni eru vel þegnar. Dyslexía, lesblinda, skrifblinda... Öll þessi orð og jafnvel fleiri hafa verið notuð yfir það að eiga erfitt með að lesa og/eða skrifa. Í bók sinni DYSLEXÍA - DYSCALCULÍA - DYSGRAPHÍA Hvernig geta nemendur nýtt hæfileika sína best í námi? gerir Elín Vilhelmsdóttir grein fyrir þessum hugtökum og þeim einkennum sem orðin standa fyrir. Fyrst útskýrir Elín hugtökin en athyglisverður kafli í bók hennar fjallar um einkenni dyslexíu - dysgraphiu - dyscalculíu.
Sérhver nemandi er einstakur og tileinkar sér þær námsaðferðir sem honum finnast bestar. Það er viðurkennd staðreynd að ekki læra allir eins og gerðar hafa verið margar rannsóknir á mismunandi námsaðferðum. (Sjá t.d. Tilly Mortimore. 2003 Dyslexia and Learning Style - A Practitioner´s Handbook. Whurr Publishers. London.) Margir nemendur með dyslexíu eiga erfitt með að nálgast námsefnið á hefðbundinn hátt og þurfa því aðstoð. Hún getur falist í ýmsu, m.a. getur kennari eða stuðningsaðili þurft að
Mikilvægt er að kennari átti sig á því að sumir nemendur geta ekki lært efnið um leið og þeir skrifa niður texta. Þess vegna getur verið varhugavert að tala um efnið á meðan nemendur eru að skrifa niður texta af glærum eða töflu. Best er að dreifa prentuðum glærum með línum þannig að nemendur geti punktað hjá sér athugasemdir á viðeigandi stað. |
|
Allar athugasemdir sendist til Sveinbjargar Sveinbjörnsdóttur: sveinbjorg@fa.is
|
©Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir