Fjölbrautaskólinn við Ármúla
 

Hugskotssjónir - sjónsköpun

Einu sinni sagði nemandi nokkur: Ég þoli ekki orð. Þau eyðileggja myndina!

Getur þú séð myndir í huga þínum? Ef þú getur það er sagt að þú getir sett þér eitthvað fyrir hugskotssjónir, séð eitthvað fyrir þér.

Þegar þú setur þér eitthvað fyrir hugskotssjónir er eins og þú sért með myndavél í höfðinu. Heili þinn er svo merkilegur að hann getur búið til margs konar myndir. Stundum eru þessar myndir af raunverulegum atburðum sem þú hefur upplifað. Stundum getur þú ímyndað þér framtíðina og stundum getur þú jafnvel kallað fram mynd af því sem alls ekki getur gerst.

Það er sagt að nýfædd börn hugsi í myndum áður en þau þroska með sér hæfileika til að hugsa í orðum og þetta myndræna minni er sterkt og lifandi. Sumir halda því fram að allt að 40% manna hugsi á myndrænan hátt en innan við 30 % skólafólks kjósi frekar munnlega framsetningu.

Hvernig er hægt að setja sér eitthvað fyrir hugskotssjónir?

Sumum finnst erfitt að sjá hluti eða atburði fyrir sér.

  • Reyndu að ímynda þér einhvern sem þú þekkir. Geturðu séð hvernig einstaklingurinn lítur út og í hvernig fötum hann er?
  • Reyndu að sjá fyrir þér herbergið þitt. Hvað sérðu fyrir þér ef þú ímyndar þér að þú stæðir í dyrunum og horfðir inn í herbergið? Eru einhverjar myndir eða hillur á veggjum? Hvaða liti sérðu í herberginu?

Hvenær er hægt að nota sjónsköpun?

Þú getur notað sjónsköpun hvenær sem er þér til stuðnings en sjónsköpun er sérstaklega gagnleg við vissar aðstæður. Í litlum bæklingi frá Helen Arkell Centre á Englandi má lesa eftirfarandi leiðbeiningar:

  • Þegar þú lest skilur þú söguna eða textann betur ef þú getur búið til mynd af henni í huganum. Þú getur þá áttað þig á röð atburða og munað smáatriði.
  • Ef þú reynir að muna röð fyrirmæla getur verið gagnlegt fyrir þig að sjá sjálfa(n) þig hrinda þessum fyrirmælum í framkvæmd um leið og þér er sagt hvað gera skal.
  • Þegar þú skrifar sögu reyndu þá að sjá hana fyrir þér. Þá geturðu skrifað nákvæmari lýsingar á umhverfi og setur atburði í rétta röð.
  • Sjónsköpun er hentug við stafsetningu. Ímyndaðu þér að þú sért í kvikmyndahúsi. Þú situr í sæti þínu og bíður eftir að myndin hefjist. Ljósin dofna en þú sérð enn ljósin við útgöngudyrnar. Hvaða merkingu hafa þessi ljós? Geturðu stafsett orðin sem standa á þeim? Kannski hefurðu aldrei skrifað þessi orð áður en þú getur engu að síður stafsett þau rétt ef þú sérð þau fyrir þér. Þú getur reynt að horfa á auðan vegg þegar þú reynir að stafsetja erfitt orð. Reyndu að ímynda þér að orðið sé skrifað á vegginn. Notaðu hvaða lit sem er á vegginn í huganum. Þú getur meira að segja látið hann glitra. Reyndu svo að skrifa orðið. Sumum finnst gott að nota þessa aðferð til að muna hvernig orð eru stafsett - öðrum finnst þetta ómöguleg leið.
  • Sjónsköpun er góð leið til að leggja eitthvað á minnið. Til þess að gera minnið enn virkara getur verið gott að nota liti. Sjónsköpun getur hjálpað þér við að raða atriðum í rétta röð og kemur í veg fyrir að þú ruglir saman mikilvægum upplýsingum.
  • Sjónsköpun er góð leið til að leysa erfið verkefni. 1)

Í bókinni Dyslexia and Learning Style gefur Tilly Mortimore eftirfarandi leiðbeiningar:

  • Komdu þér vel fyrir, réttu úr bakinu og slakaðu á.
  • Andaðu djúpt og reglulega a.m.k. sex sinnum.
  • Lokaðu augunum ef þú vilt.
  • Leiddu hugann varlega að efninu.
  • Búðu til nákvæma mynd í huga þér af efninu/fyrirbærinu og notaðu öll skynfæri til þess. Hvernig er blómið á litinn? Er rjómi á jarðarberinu? Malar kötturinn? o.s.frv. Reyndu að finna lyktina, finna bragðið, ímynda þér snertinguna, heyra hljóðið o.s.frv.
  • Teiknaðu myndina á meðan hún er enn í huga þér eða búðu til hugkort um leið og þú útskýrir hvað þú ert að gera.
  • Eyddu nokkrum mínútum í að ganga frá myndinni og bæta við atriðum sem kunna að hafa gleymst. 2)

1. Byggt á bæklingi frá Helen Arkell Centre (Visualisation)
2. Tilly Mortimore. 2003. Dyslexia and Learning Style. A Practitioner´s Handbook. Whurr Publishers. London og Philadelphia.

©Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir