Fjölbrautaskólinn við Ármúla:
Fjölnir Ásbjörnsson og Guðni Kolbeinsson hafa gefið út tvær bækur um hraðlestur ásamt verkefnabókum: Lestu betur og Lestu nú. Þeir birta í fyrrnefndu bókinni athyglisverð atriði eftir Norman Lewis (How to Read Better and Faster) til íhugunar varðandi lestur en makrmið lestrarþjálfunar er að ná að tileinka sér þá lestrartækni sem felst í hægra dálkinum. Gott er að setja sér raunhæf markmið og gefa sér tíma til að vinna að einu atriði í senn.
| Þú lest ekki nógu vel ef: | Þú lest nógu vel ef: |
| 1. þú lest hægt; 160 orð á mínútu eða minn. | 1. þú lest 300 orð á mínútu eða meira. |
|
2. þú lest allt efni, hvort sem það er auðvelt eða erfitt, með sama hraða.
|
2. þú lest mishratt eftir því hvers konar efni þú ert að lesa. Auðvelt efni, frásagnir og viðbótar-skýringar lestu hraðar en tormeltan texta. |
|
3. þú lest hvert einstakt orð eða jafnvel hvert atkvæði.
|
3. þú lest efni textans, gerir þér sjaldnast grein fyrir einstökum orðum; lest mjög lauslega merkingarsnauð orð, setningar eða málsgreinar |
|
4. þú bakkar oft í textanum - það er að segja lest orð eða setningar aftur til þess að tryggja að þú hafir skilið rétt.
|
4. þú bakkar sjaldan eða aldrei í texta - eftirtekt þín er nákvæm, hröð, áreiðanleg og svo ómeðvituð að þú getur einbeitt þér að merkingu í stað einstakra orða. |
| 5. þú hreyfir augun átta til tíu sinnum eða jafnvel oftar meðan þú lest eina meðallanga prentaða línu. | 5. þú hreyfir augun þrisvar til fjórum sinnum meðan þú lest eina meðallanga prentaða línu. |
| 6. þú "lest upphátt í hljóði" - það er að segja myndar orðin með vörum, tungu og raddböndum og heldur leshraða þínum þannig niðri. Þessi aðferð truflar líka skilning á textanum; þú leggur jafnvel mesta áherslu á að heyra textann innra með þér. |
6.þú lest í hljóði í bókstaflegum skilningi - varir, tunga og raddbönd eru hreyfingarlaus meðan þú lest. Þá skynjarðu líka mun betur merkingu textans en hvernig hann hljómar.
|
| 7. þú festist í smáatriðum og því sem litlu máli skiptir; slíkt kemur niður á skilningi á aðalatriðum og góðri yfirsýn yfir textann. | 7. þú rennir hratt gegnum smáatriði en leggur áherslu á að grípa meginhugsun textans. |
| 8. lestur þinn er óvirkur; þú plægir í gegnum setningu eftir setningu en skilur hvorki efnið í heild né tengslin milli hluta þess. | 8.þú lest með einbeitingu og skilningi, túlkar tilgang og gildi einstakra hluta verksins og leitar sífellt að meginhugsun þess texta sem þú ert að lesa. |
| 9.þér gengur illa að einbeita þér. Þar sem þú festir ekki almennilega hendur á textanum ferðu oft að hugsa um eitthvað sem ekki kemur málinu neitt við, truflast af utanaðkomandi hljóðum eða því sem er að gerast í kringum þig. Afleiðing þessa er að þú manst lítið af því sem þú lest. |
9. þú lest með fullri einbeitingu frá fyrstu mínútu. Þú verður svo upptekinn af þeim hugmyndum, sem fram koma í textanum, að þú missir allt samband við veröldina í kringum þig. Þetta leiðir til þess að þú manst vel það sem þú lest.
|
| 10. þú þreytist auðveldlega, af því að lestur er - í þínum huga - seinlegt verk, leiðinlegt og gagnslítið. Þú eyðir eins litlum tíma í bóklestur og þú mögulega kemst af með. |
10. þú lest klukkutímum saman án þess að þreytast. Þú getur auðveldlega lesið heila skaldsögu í einni lotu - og gerir það iðulega. |