Lykilatriði vegna lesturs
Mundu að
·
nota fingurinn eða penna til að fylgja
línunni þegar þú lest.
·
finna góða líkamsstellingu áður en þú hefur
lesturinn.
·
einbeita þér að lestrinum – hafðu slökkt á
hljómflutningstækjum og útvarpi.
·
hafa næga og góða birtu við lesturinn.
·
lesa að minnsta kosti eina klukkustund á dag.
·
laga leshraða þinn að efninu sem þú lest – auðvelt
efni hratt, erfitt efni hægar.
·
festast ekki í smáatriðum – leggðu áherslu á
aðalatriðin.
·
leita sífellt að meginhugsun textans sem þú lest.
·
lesa viðstöðulaust og bakka sem sjaldnast í textanum.
·
hreyfa ekki varir, tungu eða raddbönd þegar þú lest í
hljóði.
·
þegar leshraðinn eykst minnkar eftirtektin – í bili.
·
lesa ávallt eins hratt og þú getur.
·
enginn árangur næst í lestri – nema með mikilli
æfingu.
·
lestur er þjálfun og aftur þjálfun.
·
eftirtekt og skilningur er komin undir einbeitingu
þinni.
·
með því að skima hratt í gegnum texta má sjá hvert
meginefni hans er.
·
líta á lestur sem íþrótt, sem þarf að stunda til að
ná árangri
·
með því að lesa fyrstu málsgrein í hverri efnisgrein
má fá góða hugmynd um efnið.
Blindur
er bóklaus maður - Bók er bestur vina.
Heimild:
Fjölnir Ásbjörnsson og
Guðni Kolbeinsson. 1994. Lestu betur. Leskaflar. Iðnú. Reykjavík.