STEFNA OG MARKMIÐ
![]()
Í
Fjölbrautaskólanum í Ármúla er meðal annars boðið upp á nám til stúdentsprófs í bóknámsgreinum. Einnig er boðið upp á margs konar starfsnám og framhaldsnám sem skilar nemum ýmsum starfsréttindum. Það er einnig nauðsynlegt að huga að frístundaiðkun fólks svo að fólk læri að njóta fleiri frístunda sem ættu að myndast í þjóðfélagi sem verður stöðugt tæknivæddara. Nemendur eiga nú þegar kost á myndlistaráfanga sem bæði getur skapað viðkomandi starf og tómstund og þannig er um fleiri áfanga við skólann.Brids er vinsælt tómstundagaman sem einnig hefur þá kosti að þjálfa bæði minni og rökrétta hugsun. Brids stuðlar einnig að auknum félagslegum þroska og sjálfsaga. Það eru fá ár frá því að Íslendingar náðu svo langt að skáka mestu bridsþjóðum heims og ná að vinna hina frægu Bermúda skál og ef á að endurtaka þann leik verðum við að gera eins og Danir og fleiri þjóðir sem eru komnir með bridskennslu í skólana. Við stefnum að því að taka upp kennslu í tveimur áföngum í brids.
![]()
Námslýsing á áföngum í brids.
Markmið:
Reynt verður að tengja áfangana við skólabridsmót sem yrði einu sinni eða tvisvar á önn. Æskilegt er að í náinni framtíð verði bridsmót framhaldsskólanna. Mjög æskilegt er að í nútímaþjóðfélagi þar sem frítími fólks er stöðugt að aukast þá eigi fólk kost á skemmtilegri og örvandi tómstundaiðju.
![]()
Brids 102
: Brids 102 er byrjunar áfangi í brids. Enginn undanfariÁhersla er lögð á að hluti af tímunum fari í að spila þannig þjálfun fáist í vörn og sókn. Háttvísi í brids. Hvernig á að gera áætlun í grandsamningi? Eftirtalin hugtök eru kennd: slagur, punktar, grand, tromp, trompfitt (trompsamlega), misfitt, útspil, köll og frávísun, ásaspurning, Stayman. Sagnkerfið "Standard American" verður lagt til grundvallar og gert ráð fyrir að allir noti sama kerfi. Innákomur einnig skilgreindar. Kennslubók sem lögð er til grundvallar er "Brids fyrir byrjendur" eftir Guðmund Pál Arnarson.
Brids 202
: Brids 202 er framhaldsáfangi í brids. Undanfari BRI102Sem áður er mikil áhersla á verklegar æfingar. Upprifjun á grundvallaratriðum, ýmsar sagnvenjur kenndar og varnarsagnir. Frekari áhersla lögð á lausn þrauta, bæði hvað varðar sagnir, úrspil og vörn. Til dæmis má nefna fyrirstöðusagnir, Jacoby-yfirfærslur, splinter, Roman Key Card Blackwood (5 ása spurning), Michaels andsögn (55 í hálit og láglit), Lebensohl. Einnig fleiri ábendingar um vörn og upplýsingastreymið í vörninni. Meira um háttvísi í brids. Verkefni um úrspil og vörn.
Ég
brids !
