Lengdarmerkingar í brids.

 

 

Köll og frávísanir eru aðallega notaðar

 

Netið  (BridgeBase Online)

Á netinu reikna flestir með því að hátt-lágt lofi sléttri tölu ( tvílit eða 4-lit), en lágt en síðan hærra spil sýni oddatölufjölda. Einnig er meginregla að kalla með háu og frávísa með lágu á netinu.

 

Hér á landi

Flestir keppnisspilarar hér snúa báðum þessum reglum við – þ.e. kalla með lágu og frávísa með háu. Sömuleiðis  sýna flestir keppnisspilarar slétta tölu með lágu og öfugt.

 

Reglur um útspil,

 

11-reglan (fjórða hæsta)

Í grandsamningi er algengt að spila út 4. hæsta spili af lengsta lit.  Þessi aðferð hjálpar vörninni að meta styrk sagnhafa í litnum. Útspilið er t.d. hjartafimma. Aðferðin er kölluð 11-reglan því varnarspilarinn dregur 5 frá 11 og sé þá að 6 spil eru hærri en fimman hjá þér, blindum og sagnhafa. Ef blindur er með G93 og þú með KT62 þá er sagnhafi með nákvæmlega eitt spil hærra en fimman.

 

Í litarsamningi beita margir spilarar þeirri aðferð að spila 3 hæsta (frá 3-lit, 4-lit og frá 6-lit) en 5 hæsta frá 5-lit. Einnig að spila hærra spili frá tvílit.

Ef 3. hæsta er spilað þá gildir 12-regla, (12 - spilið) gefur upp fjölda spila ofan við spilið.

10-regla gildir ef spilað er 5. hæsta.

 

MUD (middle – up – down),  Sumir nota regluna MUD þegar þeir spila frá 3 hundum. Þá spila þeir miðspilinu fyrst, svo hæsta og að lokum það lægsta. Oft er erfitt fyrir bæði varnarspilara og sagnhafa að átta sig á frá hverju er spilað.

 

Journalist  útspil: Ég held að þetta virki þannig að lágt útspil lofar góðum lit en hátt útspil  (t.d. nía) neitar góðum lit.

 

Algeng regla er einnig að spila næsthæsta spili af brotinni röð (ÁGT9x, KGTxxx, KT98x, DT9xx o. frv.)

Enn aðrir spila 3. af brotinni röð.  Þetta verður að vera samkomulagsatriði enda ómögulegt að sjá að önnur aðferðin sé betri en hin.

 

Val á útspili í grandi

Þó að það sé gott að hafa þessar reglur þá er ekki alltaf best að spila út lengsta lit. Það getur gefið sagnhafa tækifæri til að fá óvænta slagi.  Hins vegar ef þér sýnist á sögnum að einhver veikleiki sé hjá sagnhafa í litnum þá getur verið mikilvægt að vera á undan að brjóta slagi í langa litnum.

Ef þú átt fáa punkta en langan lit þá er vænlegra að reyna að hitta á lengsta lit félaga þíns því líklegra er að hann hafi þá innkomur til að hala inn slagi á litinn.