Vikuskammtur

8. september 2003

 

Vika símenntunar

Vika símenntunan var sett í gær í KHÍ.. Í máli menntamálaráðherra kom fram að nú eru skráðir í fjarnám rúmlega 4000 manns. Það lætur því nærri að FÁ sé með ráðandi hlut, svo gripið sé upp orðalag úr viðskiptaumræðunni.

 

Umsjónarfundur

Umsjónarfundur verður haldinn á miðvikudaginn. Nemendur fá þá aðgangsorð sitt að Innu  og farið verður yfir nokkur mál. Námsráðgjafar auglýsa dagskrá og fundartíma.

 

Starfsþjálfun kennaranema

Hannes Ólafsson sat fund fyrir skólans hönd þar sem háskólamenn fjölluðu um framhald starfsþjálfunarmála. Lítið sem ekkert fé er ætlað til hins arna og framhaldið því í lausu lofti.

 

Safamýrarmál

Undirritaður situr í nefnd sem á að undirbúa og ganga frá stofnun nýrrar sérdeildar fyrir fjölfatlaða á vegum skólans sem rekin yrði í húsnæði Safamýrarskóla. Fyrsti fundur var boðaður síðastliðinn föstudag, en honum var aflýst þar sem fulltrúar borgarinnar gátu ekki mætt.

 

Síðumúli 6

Húsnæðið í Síðumúla 6 er nú tilbúið, Vigfús setti hurðina miklu upp um helgina.

 

Lífsleikniferð

Nemendur fæddir ´87 fara í lífsleikniferð í Þórsmörk á fimmtudaginn. Lagt verður upp kl. 8.30, komið heim um miðjan föstudag. Listi með nöfnum nemenda verður hengdur upp á kennarastofu og það mundi spara mikinn tíma í leiðréttingavinnu ef kennarar merktu ekki við þá sem fara. Búast má við mjög þunnskipuðum hópum í ýmsum byrjendagreinum þessa daga.

 

Stýrihópur um sjálfsmat

Hólmfríður Bára Bjarnadóttir og Kristján Þór Kristjánsson hafa verið skipuð í stýrihóp um sjálfsmat, en enn vantar starfsmenn í hópinn. Gefið ykkur fram!

 

Fjarkennslureglugerð

Undirritaður sat annan fund reglugerðarnefndarinnar í vikunni sem var. Vinnunni miðar sæmilega og eigum við Hjalti Jón Sveinsson og Aðalsteinn Eiríksson að skrifa drög að reglugerðinni fyrir þar næsta fund. Á næsta fund verða boðaðir fjarkennslustjórar FÁ og VMA auk Ásrúnar Matthíasdóttur.

 

Verðlaunaveiting

Vetniskrakkarnir fá verðlaun sín afhent í anddyrinu mánudaginn 15. september kl. 12.45.

 

 

Sölvi Sveinsson