Vikuskammtur

8. nóvember 2004

 

ADSL tengingar

Skólinn gerđi samning viđ Skýrr og Landssímann um ADSL-tengingu starfsmanna viđ stađarnet skólans og Internetiđ í gegnum FS-netiđ (net framhaldsskóla). Skólinn leigir 10 Mb/s BBRAS-tengingu hjá Landssíma og rekur eigin radíusţjón. Nú ţegar hafa u.ţ.b. 70 starfsmenn nýtt sér ţetta tilbođ og eru sítengdir Netinu ađ heiman. Međ ţessu hafa starfsmenn ađgang ađ öllum netdrifum skólans ađ heiman svo og prenturum auk ţess sem ţeir eru tengdir Interneti. (Tek ţađ fram í ljósi umrćđna um ritstuld ađ svo tćknilegar upplýsingar eru allar úr ranni netstjóra).

 

Erlend heimsókn

Kirsi Needelman frá Vantaa vocational institute, social and health care department, í Finnlandi heimsótti skólann í vikunni sem var. Hún fékk styrk frá Nordplus til ţess koma og skóđa skólann.

 

Merkilegar upplýsingar úr fjarnámspúllíunni

Í fjarnáminu hjá okkur núna á haustönn 2004 eru tćplega 170 grunnskólanemendur í um 200 áföngum.  Alls eru 14 grunnskólar međ sína nemendur í námi hjá okkur. Ţetta var í pistli frá Sigurlaugu á dögunum og ég spái ţví ţessum nemendum fjölgi enn nćsta haust.

 

Doktorsnám

Ásrún Matthíasdóttir sem viđ ţekkjum öll bađ um leyfi til ţess mega rćđa viđ stjórnendur, kennara og nemendur um upplýsingatćknistudda kennslu, fjarnám og fleira í tengslum viđ doktorsnám sitt. Ég samţykkti ţađ og vćnti ţess kennarar taki henni vel ţegar ţar kemur.

 

Fjarnámsskráning

Skráning í fjarnám á vorönn 2005 hefst 7. janúar og stendur til miđnćttis 17. janúarEnn eiga nokkrar deildir eftir senda fjarnámsstjóra skrá um áfanga í bođi, en brýnt er koma ţeim upplýsingum út á netiđ ţegar til ţess fćkka símtölum og skeytasendingum.

 

Föstudagur 12. nóvember

Deildafundir eru bođađir kl. 13.00 á föstudaginn.

 

Íslenskuskólinn

Brátt verđur undirritađur samningur á milli Framvegis, Íslenskuskólans og menntamálaráđuneytisins um samstarf ţeirra fyrrnefndu um starfsemi Íslenskuskólans. Skólinn býđur grunnskólabörnum sem eru búsett erlendis upp á íslenskukennslu á netinu. Hönnuđir hans og kennarar eru ţau Árni Björgvinsson, Gígja Svavarssdóttir og Ţorbjörg Ţorsteinsdóttir. Framvegis mun halda utan um starfsemina til byrja međ, en koma smá saman inn í faglegt starf skólans. Á vef Íslenskuskólans eru aldursflokkađir vefir, einstök námskeiđ, umrćđuţrćđir, leikir, lestrarátak og margt fleiraSjáiđ ţennan frábćra skóla: http://islenskuskolinn.is/. ţví er stefnt bćta viđ fleiri greinum.

 

Samstarfsnefndarfundur framhaldsskólastigsins

Ţessi fundur verđur haldinn fimmtudag og föstudag. Hann sitja skólameistarar, ráđuneytismenn og ráđherra. Ađalmál fundarins núna er stytting names til stúdentsprófs, viđbótarnámiđ og tregđa háskólans, fjáraukalagafrumvarp fyrir áriđ 2004 (skiptir okkur miklu vegna fjölgunar nemenda), innritun í skólana á nćsta ári, kjarasamningar og fleira.

 

Bretlandsheimsókn 3.-7. nóvember

Mér fannst gaman og fróđlegt heimsćkja Witchford village College sem er í samnefndu ţorpi í grennd Cambridge. Ţar eru 900 nemendur á aldrinum 11-18 ára í secondary school eins og ţađ heitir sem leggur sérstaka áherslu á íţróttir, enda tveir leikfimisalir í húsinu, íţróttavellir allt um kring. Allir nemendur heitan mat í hádeginu. Ţeir ganga í skólabúningum sem eru gráleitar buxur, blá peysa međ merki skólans fyrir 11-14, en rauđ peysa fyrir 15-18. Stjórn nemendafélagsins hins vegar klćđast eigin fötum; ţannig er hún auđţekkt frá hinum. Allir eiga vera í svörtum skóm, íţróttaskór óleyfilegir. Liti menn hár sitt tveimur litum skulu ţeir dveljast heima uns annar er vaxinn úr! Skólastjórinn fer aldrei inn á kennarastofu nema hann sérstaklega bođinn ţangađ. Skólinn var hreinlegur og notalegur andi sveif yfir vötnum.

            Í samrćmi viđ verkefniđ hefur WvC breytt ýmsu í kennsluháttum sínum. Allir nemendur eru t.d. prófađir sérstaklega í samrćmi viđ kenningar Gardners og reynt er meta  hvernig ţeir lćra, hvort sjónfćrni, heyrn eđa hreyfitengt nám henti ţeim best. Kennarar niđurstöđur í hendur. Nýlega breyttu ţeir töflugerđ og kennslu á ţann veg hver nemandi er einungis í ţremur greinum á dag, auk íţrótta, 100 mínútur í senn. Í hverri lotu á kenna ţannig höfđi til áđurnefndra ţriggja greindarsviđa.

            Kristen og Dóra hafa unniđ mjög gott starf í ţessu samhengi og međal annars sett upp vef fyrir verkefniđ í samvinnu viđ Ólaf Ţórisson. Ţćr opna hann öđrum innan tíđar.

            Mér fannst gaman koma til Cambridge og ganga ţar um götur og skođa gamla stúdentagarđa og suma heimsfrćga, svo sem eins og King´s College og Trinity College. Ţar var nýlega plantađ eplatré viđ innganginn í minningu Newtons sem reyndar fékk epliđ í hausinn ţegar hann var heima í fríi! En núverandi tré ţar á flötinni mun einmitt vera afkomandi ţess ágćta trés sem ţyngdarafliđ neyddi til ţess vekja Ísak af vćrum blundi.

            Samstarfsskólarnir frá Englandi, Ítalíu og Portúgal verđa gestir okkar um miđjan apríl nćstkomandi.

 

Sölvi Sveinsson