Vikuskammtur
8. desember 2003
Próf ganga vel
Ég fæ ekki betur séð en skipulag prófa sé til fyrirmyndar og salurinn nýtist að fullu. Einu hnökrarnir sem koma inn á borð til mín eru vegna ólokinna annarprófa eða vegna vanskila á verkefnum. Við verðum að sníða þá af fyrir næstu prófatörn. Prófstjóri heldur vel um tauma – þótt ekki sé einkennisbúinn!
Próf í fjarnámi, svo víða sem þau eru tekin, hafa einnig gengið vel og það kerfi trúnaðarmanna sem Steinunn hefur komið á fót, stendur sig með prýði.
Skólanefnd
Skólanefnd heldur síðasta fund ársins næstkomandi miðvikudag. Á dagskrá verða húsnæðismál, þjónustugjöld og árið framundan.
Bygginganefnd
Byginganefnd ráðuneytis og Reykjavíkurborgar heimsækir nú alla þá skóla sem byggja á við. Nefndin verður hér í dag, kl. 12.00.
Nordplus
Ég sótti fund síðastliðinn fimmtudag í Norræna húsinu. Þar var verið að kynna 5 nýjar stuðningsáætlanir norrænu ráðherranefndarinnar. Skólinn hefur oft fengið styrki úr Nordplus junior og vert er að benda kennurum á að þeir geta nú líka sótt þangað. Nordplus voksen styrkir fullorðinsfræðslu og ætti Framvegis að eiga þar greiðan aðgang. Nordplus nabo styrkir margvíslega starfsemi sem hægt er að koma á fót milli annars vegar Norðurlanda og hins vegar Eystrasaltslanda, m.a. fjarkennslu og netstuddri kennslu. Nordplus sprog styrkir margvísleg verkefni, námskeið eða námsgagnagerð sem lúta að kennslu í norrænum málum. Nánari upplýsingar eru á vef Alþjóðaskrifstofu háskólans sem einnig aðstoðar við umsóknir, www.ask.hi.is.
Val
Nú á öllu vali að vera lokið. Afar brýnt er að umsjónarkennarar yfirfari valið með nemendum á valdegi og staðfesti með staðfestingarhnapp að því loknu. Skv. bókhaldinu hafa allmargir nú þegar staðfest val, en það gengur ekki því að einkunnir liggja ekki fyrir. Þetta skiptir höfuðmáli upp á að finna út sem fyrst hvernig á að skipta kennslunni.
Fundur með Jóni Torfa
Félag íslenskra framhaldsskóla hélt fund síðastliðinn föstudag og hélt Jón Torfi erindi um framhaldsskóla í deiglu. Hann hefur sankað að sér firnum af gögnum og varpar fram forvitnilegum spurningum. Mér fannst dálítið sláandi að sjá niðurstöður PISA könnunarinnar um lestrarfærni settar fram á myndrænu formi, en þar eru öll Norðurlönd með sama munstur nema hvað Finnar skera sig úr. Um 50% nemenda hafa laklega eða mjög slæma kunnáttu í lestri og við hverju er þá að búast þegar skólinn er fyrst og fremst sniðinn að vel læsu fólki? Og hvernig má það vera að svo margir eru illa læsir 15 ára gamlir?
Sölvi Sveinsson