Vikupistill
7. mars
2005
Breytingar á starfsliði
skólans
Ragna Guðmundsdóttir bókasafnsfræðingur hætti störfum 28. febrúar
síðastliðinn. Hún fer að starfa á bókasafni Kópavogs. Ég vil þakka Rögnu fyrir
gott starf í þágu skólans og óska henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Við starfi Rögnu tekur Þóra Kristín Sigvaldadóttir
bókasafnsfræðingur. Hún hóf störf við FÁ þann 1. mars síðastliðinn. Ég býð Þóru
Kristínu hjartanlega velkomna og óska henni góðs gengis í nýju starfi.
Árdagar og árshátíðir
Árdagar voru í síðustu viku og gengu vel. Dagskrá Árdaga var fjölbreytt og
margt athyglisvert í boði (fylgiskjal). Árshátíð nemenda var haldin
fimmtudagskvöldið 3. mars. Hún hófst með borðhaldi og síðan var dansleikur á
Nasa sem fór vel fram. Starfsmenn héldu sína árshátíð sl. föstudag og tókst hún
einnig mjög vel.
Fjarvistaskráning vegna
Árdaga
Tímar sem féllu niður 1. mars vegna árdaga frá og með 3. tíma: færið inn X.
Viðverufyrirkomulag vegna árdaga verður þannig að sett er inn á alla
nemendur tiltekið áfangaheiti.
Fjarvistir vegna árdaga verða færðar hjá skrifstofu. Skili nemandi ekki
viðverumiða verður fjarvist skráð.
Nemendur skila viðverumiða til síns umsjónarkennara. Umsjónarkennari skilar
til skrifstofu lista yfir sína nemendur sem hafa tilskilda viðveru. Færðar
verða fjarvistir á alla aðra nemendur.
Þetta skipulag verður nánar kynnt
á kennarafundi næsta föstudag.
Samræmd stúdentspróf
Kennarar í efri áföngum eru beðnir um að minna nemendur á að skrá sig í
samræmd stúdentspróf. Skráningu þarf að vera lokið miðvikudaginn 9. mars,
Fundir
Fundur um samræmd próf þriðjudaginn
8. mars
Fundur um samræmd próf verður haldinn þriðjudaginn 8. mars kl. 12.00. Það
er rétt að hvetja alla sem eru að ljúka námi til stúdentsprófs á næstu önnum að
mæta. Það er heppilegt fyrir nemendur að dreifa álaginu og taka eitt samræmt
próf á önn.
Kennarafundur 11. mars
Kennarafundur verður haldinn föstudaginn
11. mars kl. 13.00 á kennarastofu. Dagskrá fundarins: Umfjöllun um
niðurstöður prófa á haustönn 2004. Önnur mál.
Skólanefndarfundur 2. mars
sl.
Fundur skólanefndar var haldinn miðvikudaginn 2. mars. Á dagskrá var skólastarfið á vorönn, fjárhagsáætlun,
umhverfisstefna, málefni Framvegis og
önnur mál. Skólanefnd samþykkti umhverfisstefnu
skólans. Fram kom að skólinn
hefur sótt um Grænfánann.
Gísli Ragnarsson
Dagskrá Árdaga 1. - 3. mars
2005
1. mars:
Hvað viltu verða? Tala í sviga: hversu margir geta tekið þátt. *:utan skólans
09:00
Vegagerðin (20)* Frá tækniborðinu í framkvæmd!
10:10
Opnun Árdaganna.Gleðisveit
Ármúla og kaffihús - allir setjast niður og fá sér kaffi áður en dagskrá hefst
10:35
Dýralæknir (6)* Björgvin - Hesthúsahverfi Gusts í
Kópavogi
Fellaskóli (9)* Kennsla - Þorsteinn skólameistari
Sauma- og prjónanámsk.
Sigurlaug
Fatahönnun (allir 3 dagarnir) Selma hjálpar fólki
að fá útrás fyrir sköpunargleðinni
Leikskólinn Klambrar (12)* Kynning á
leikskólakennslu
Langholtsskóli (8)* Kennsla
Öskjuhlíðaskóli (15)* Kennsla fatlaðra
KB banki (20)* Kynning á störfum lögfræðinga,
hagfræðinga, markaðsfræðinga, viðskiptafræðinga og almennra bankastarfa -
Borgartún 19
11:00
Qualcomm, San Diego
Karen Brotzman er aðalfyrirlesari á UT2005 (ráðstefnu
um upplýsingatækni). Hún hefur 38 ára starfsreynslu í hátækni og stjórnun hjá
fyritækjum eins og Intel, Motorola
og Qualcomm í Bandaríkjunum. Hún mun ræða við okkur
um störf sín þar sem og “gildi” fyrirtækja vs gildi
einstaklinga.
Arkitekt Guðrún Norðdahl, myndlistakona
Sálfræðingur Sigríður Karen - fyrirlestur og spjall
Lögfræðingur Jóhannes Karl Sveinsson, hvernig er að
flytja mál fyrir rétti o.fl.
Kvikmyndagerðamaður Óskar Jónasson, hvernig
er að starfa við kvikmyndagerð
Björgunarsveitamenn Hvað felst í því að vera í
björgunarsveit??
12:00
Matur A.J. syngur, kór
Ármúlaskóla syngur ásamt gestum og eldað verður í salnum! Allir að borða saman!
13:00
Gíraffa-tungumálakennsla Pálína Erna Ásgeirsdóttir
Mars, fyrirlestur Ólafur aðstoðarskólameistari
Microsoft Elvar, forstjóri Microsoft á Íslandi
kynnir sín mál
UniFem Hrund Gunnsteinsdóttir þróunarfræðingur
kynnir starfsemi Sameinuðu þjóðanna fyrir konur
Alþjóðahúsið (15)* Hvernig er að starfa að málefnum
innflytjenda?
13:30
Bókasafnsfræði Kristín bókasafnsfræðingur
Tölvukynning* Ólafur Þórisson, kennari
Marel (20)* Kynning á starfseminni
Nuddskóli Íslands* Starfskynning
Lavazza, kaffiskóli* Lærðu að
laga kaffið rétt!
14:00
Frístundaheimilið Hlíðaskóla(5) Hliðaskóli -
Elísabet
15:00
Frístundaheimilið Hlíðaskóla(5) Hlíðaskóli -
Elísabet
Ísaga (15)*
2. mars,
Menning og listir
08:00
Árbæjarskóli (3)* Kennsla
08:30
Rimaskóli Kennsla (4)*
09:30
Bítlarnir Halldór Gísli Bjarnason,
kennari í starfsdeild, kynnir sögu Bítlanna með mynd-
og tóndæmum
Sinfóníuhljómsveit Íslands* Tónleikar í
Háskólabíói. Allir velkomnir.
Forritun tölvuleikja Eggert Jón Magnússon, einn
höfunda Eve Online.
Ferð á Gljúfrastein (45)* Farið í rútu frá
skólanum. Verð: 1000 kr.
Teiknimyndir: Red vs. Blue
10:00
Pönkið Margrét Gestsdóttir sögukennari.
Nútímadans Bríet og Telma sýna og kenna.
Tímaritaútgáfa og uppsetning stórsýningar
Páll og Auður miðla reynslu af þessu
Teiknimyndir: Red vs. Blue Kóreskar myndir.
10:30
Atvinnuljósmyndun og grafísk hönnun (20) Komið á
námskeið hjá Herði og Rúnari sem eru atvinnumenn í faginu.
Kjarvalsstaðir (25)* Teiknimyndir: Red versus Blue
11:00
Hipp hopp Baldvin Þór Magnússon
Sinfóníuhljómsveit Íslands* Tónleikar í
Háskólabíói. Allir velkomnir.
Málun Gréta Mjöll myndlistarkennari.
Listasafn Íslands (30)
Flow Listin í kringum það sem ekki
verður keypt úti í búð. Hildur Björk Leifsdóttir.
Listmálari(15) Heimsókn til Georgs Guðna listmálara
Námskeið í hindrunarstökki (15) Stine
Munk Rasmussen með bóklegan tíma fyrir hestafólk, verklegt í Reiðhöll Andvara
daginn eftir. Námskeiðið er bóklegt.
Teiknimyndir: Red vs. Blue
HÁDEGISTÓNLEIKAR: PÁLL ÓSKAR
13:00
Gítartími à la Jan Mayen.Valgeir, gítarleikari og
söngvari Jan Mayen
Málun Gréta Mjöll myndlistarkennari
Þjóðleikhúsið (25)*
Jazzballett Komið og dansið með
kennurum frá Jassballettskóla Báru (25)
Eldum saman! (16) Komið og takið þátt í
sameiginlegri matargerð og máltíð
Rithöfundur í heimsókn Einar Már Guðmundsson,
höfundur Engla alheimsins og annara bóka, kíkir í heimsókn
Kvikmyndagagnrýni Ólafur Torfason
Kóreskar myndir.
13:30
Ásmundarsafn (25)*
Borgarleikhúsið (50)*
Balkanskir dansar Veska Jónsson frá Búlgaríu.
Afríkudans.Sólveig Hauksdóttir, kennari í
Heilbrigðisskólanum.
14:00
Diskó Páll Óskar Hjálmtýsson
RÚV í Efstaleiti (12)
Rithöfundur í heimsókn Vilborg Davíðsdóttir,
höfundur Við Urðarbrunn, Nornadóms og annarra bóka kíkir í heimsókn
Grafíkverkstæðið Áfram veginn (15)
Laugavegi 1, Listamenn að störfum.
14:30
Afríkudans. Sólveig Hauksdóttir, kennari í
Heilbrigðisskólanum.
3. mars,
Íþróttir og heilsa
08:00
Fótboltamót í Framheimilinu* Nauðsynlegt að skrá
lið til keppni! Gunnar Andri sér um skráningu liða.
09:00
Kaffihúsið opnar
09:30
Tölvuleikjaumræða
MS sjúkdómurinn Sigurbjörg Ármannsdóttir formaður
MS félagsins.
Íslenskur handbolti Birkir Ívar Guðmundsson
landsliðsmarkvörður ræðir um boltann.
Sundsprettur í Laugardalslaug Verð: 250 kr.
Skautar Verð: 300 kr. fyrir þá sem koma með skauta
en annars 500 kr.
10:00
Einelti Jón Páll frá Regnbogabörnum ræðir um
einelti.
Hómopati kemur og ræðir um heilsu.
Playstationmót(16) Keppt verður í
fótboltaleiknum Evolution Pro
Sundsprettur í Laugardalslaug Verð: 250 kr.
Skautar Verð: 300 kr. fyrir þá sem koma með skauta
en annars 500 kr.
Námskeið í hindrunarstökki Stine
Munk Rasmussen kennir í Reiðhöll Andvara. (10:00-12:00)(framhald af bóklegum
tíma daginn áður)
10:30
Næringarfræðingur
SÁÁ Fyrirlestur um áfengis- og vímuefnavanda.
Matreiðslunámskeið og góður matur
Sundsprettur í Laugardalslaug Verð: 250 kr.
Skautar Verð: 300 kr. fyrir þá sem koma með skauta
en annars 500 kr.
11:00
Kynlíf Jóna Ingibjörg ræðir um kynlíf og
kynsjúkdóma.
Þunglyndi Ásgeir Þór Jónsson ræðir um þunglyndi.
Köfun (30) Verð: 1000 kr. Frá kl. 11:00 til 13:00
Sundsprettur í Laugardalslaug Verð: 250 kr.
Skautar Verð: 300 kr. fyrir þá sem koma með skauta
en annars 500 kr.
13:00
Kayak Fólki leyft að prófa að róa kayak í barnalauginni í Laugardal.
Snjóbrettanámskeið Arnór og Gummi kynna íþróttina.
Bindishnútanámskeið Ólafur Jónsson með árvissa og
sívinsæla kennslu
13:20
Capoera(25)
Júdó(20)
Árdaganefnd
Daníel Ingi Þórisson nemandi
Halldór Gísli Bjarnason kennari
Helga Dís Árnadóttir nemandi
Kristen Mary Swenson
kennari
Margrét Gestsdóttir kennari
Selma Ragnarsdóttir kennari
Steinunn Helga Sigurðardóttir nemandi
Sæþór Ólafsson kennari
Þór Elíasson nemandi
Ólafur H. Sigurjónsson aðstoðarskólameistari
starfaði með nefndinni
Minnum svo á Árshátíðina
;)