Vikupistill
7. febrúar
2005
Ársnemendur – fjárveitingar
til skólans
Þann 4. febrúar 2005 voru
skráðar einingar nemenda í dagskólanum 17734
sem jafngildir 1014 ársnemendum á
önn. Í fjarnáminu voru skráðar einingar nemenda 6704 sem jafngildir 383
ársnemendum á önn. Samtals eru því ársnemendur á vorönn 1397.
Allar greiðslur til skólans miðast við þá nemendur
sem fá einkunn ≥ 1. Það er því mjög mikilvægt að kennarar gefi öllum
nemendum slíka einkunn. Nemandi sem er tekinn af hópalista eða fær einkunnina 0
er tapað fé. Þegar nemandi hættir í
þriggja eininga áfanga missir skólinn af 45.000 kr
framlagi frá ríkinu. Því beini ég þeim tilmælum til kennara að þeir gefi nemendum
ekki lægri einkunn en 1. Nemendur geta ekki sagt sig úr áfanga eftir þessa viku
nema námsráðgjafar mæli sérstaklega með því.
Umhverfismál
Föstudaginn 4. febrúar kl. 13.00 var haldinn fundur á kennarastofu þar sem
fulltrúar Landverndar kynntu Grænfánann. Skólinn stefnir að því að fá Grænfána
fyrir umhverfisstefnu sína og mun styðjast við umhverfisgátlista frá
Grænfánaverkefninu.
Söngkeppni og dansleikur
Það var þétt og góð stemming í Austurbæ þegar keppendur stigu á svið og
fluttu “flotta” slagara eins og “Tequila, Vertu ekki
að plata mig, KoKomo og If I ain´t
got you”. Keppendur voru margir hverjir í glæsilegum
búningum með bakraddir og dansara. Greinilegt var að sumir keppendur voru með
stuðningslið í salnum og var mikið klappað og hlegið. Í dómnefnd voru Páll
Óskar Hjálmtýsson, formaður dómnefndar; Ragnheiður Gísladóttir og Jónína
Kristinsdóttir þýskukennari.
Vinsamlega læsið
kennslustofum
Kennarar eru vinsamlega beðnir um að læsa kennlustofum
þegar þeir yfirgefa þær. Sérstaklega er brýnt að læsa stofunum þegar kennslu
lýkur síðdegis.
Forvarnir
Talsverð umræða er í þjóðfélaginu um að mikið magn fíkniefna sé í umferð.
Kennarar og aðrir starfsmenn eru því beðnir um að vera á varðbergi gegn þessum
vágesti.
Fundir í vikunni
Gísli Ragnarsson