Vikuskammtur
6. október 2003
Sérdeild í Safamýri
Undirritađur var bođađur til ráđuneytisstjóra mmrn. síđastliđiđnn ţriđjudag. Ákveđiđ er ađ stofna sérdeild fyrir fjölfatlađa í Safamýrarskóla og mun skólinn bera rekstrarlega ábyrgđ á henni. Hugsanlega verđa 5 unglingar hér eftir áramót. Ţetta ţýđir ađ auglýst verđur eftir sérkennara sem mun stjórna ţessari deild og jafnframt axla ábyrgđ á starfsbraut 1. Fleiri sérkennarar verđa ráđnir sem ćttu ađ nýtast líka til ţess ađ takast á viđ ýmsa sértćka námsörđugleika.
Gul spjöld
39 gul spjöld fóru á loft í vikunni sem var og 11 rauđ..
Afrit ţeirra er sent heim til forráđamanna ólögráđa nemenda en beint til hinna.
Ţeir eru bođađir í viđtal, ađra vikuna til mín, hina vikuna til Ólafs. Heimtur
eru misjafnar. Ţađ má gjarnan ítreka ţađ núna ađ rautt spjald ţýđir ađ
viđkomandi fćr ekki skólavist á bak jólum. Umsjónarkennarar fá í vikunni skrá
yfir nemendur sína sem illa standa og eru beđnir ađ veita ţeim audíens.
Matarverđ
Svo er málum háttađ ađ skólinn fćr fé til ţess ađ greiđa matráđi, en ţađ er opinbert stöđuheiti hennar Kristjönu okkar. Sú virkt í mat og drykk sem viđ njótum er langt umfram starfsskyldur matráđs og ţví var ráđinn ađstođarmađur í eldhús, hún Sigrún sem bakar betra brauđ en bakaríin samanlögđ. Hún er í hálfri stöđu sem matarfélagiđ verđur ađ bera. Ţess vegna hćkkađi maturinn í haust.
Stytting náms til
stúdentsprófs
Skýrslan er á heimasíđu menntamálaráđuneytis, en skólinn fékk send tvö eintök sem eru á kennarastofu. Skv. skýrslunni ćtti ađ fćkka hjá okkur um rúmlega 100 nemendur, sem minnkar húsnćđisţörf skólans um 900 fermetra. Eftir sem áđur vantar 2300 fermetra til ađ uppfylla “normiđ”, en ţađ er 8 fermetrar fyrir hreina bóknámsskóla. Ćtli viđ liggjum ekki niđri á 4.9 fermetrum núna. Ég hvet menn til ţess ađ verđa sér úti um lykilorđ ađ umrćđuslóđinni á menntagatt.is og leggja sitt af mörkum.
Kennarafundur
Kennarafundur verđur haldinn nćstkomandi föstudag kl. 13.00 í umsjá námsráđgjafanna. Á dagskrá eru ţrjú mál, auk annarra mála: 1) Á ferđ um hiđ blauta Holland. Katrín og Ólafur gera grein fyrir Leonardóheimsókn sinni. 2) Vetniskrakkar og ađrir krakkar í Búdapest. Sigríđur Anna Kristjánsdóttir vetnisbarn segir frá ferđinni. 3) Stytting náms til stúdentsprófs. Hverju breytir hún hér innan húss? Hfefur hún áhrif á starfsmannahald? Detta einhverjar greinar út? Er hćgt ađ prófa á fćrri dögum en nú eftir ađ samrćmd próf koma til? Ólafur H. Sigurjónsson hefur framsögu.
Frumvarp til fjárlaga 2004
Frumvarpiđ var lagt fram ađ venju á ţingsetningardegi og er dođrantur, móköggull upp á 495 síđur og er í rauninni mjög fróđleg lesning, einkum greinargerđin. Fjárveitingar til skólans hćkka um 27,6% miđađ viđ fjárlög síđasta árs, en ţađ mćlir okkur 442 milljónir í rekstrarfé; af ţví eru sértekjur 41 milljón, sem ég átta mig ekki alveg á. 442 milljónir eru hins vegar 4,1 prósent lćgri fjárhćđ en kostađi ađ reka skólann í fyrra.
Ánćgjulegt er ađ loksins er hin magíska ársnemendatala upp á 658 ársnemendur horfin. Nú er gert ráđ fyrir 800 ársnemendum sem er mikil framför. Viđ vildum hafa 950, en međ 800 nemendur inni ćtti ađ vera hćgt ađ semja sig upp í rúmlega 900 ársnemendur. Ţađ er svo ákvörđun okkar hvernig viđ deilum ţeim í nćr- og fjarnemendur.
Gert er ráđ fyrir 16.220 ársnemendum í framhaldsskólum áriđ 2004 sem er 400 fleira en í ár. 90,5% 16 ára unglinga skráđu sig í skóla 2002, en 89% 2001; talan í haust mun liggja nálćgt 93%.
Ársnemandi kostar 480.000 kr. hjá okkur á nćsta ári. Ódýrustu ársnemendurnir eru í Versló, kosta 415 ţús. stykkiđ, en 427 ţús. í MR og MS. Dýrustu ársnemendurnir eru í Verkmenntaskóla Austurlands, 805 ţús.
Til samanburđar má taka tölur um ýmsar stofnanir. Háskólabókasafn-Landsbókasafn kostar 459 milljónir ađ ári, Ţjóđleikhúsiđ 487 millj., Kennaraháskólinn 1269 millj., en rekstur menntamálaráđuneytisins kostar litlu minna en okkar starfsemi eđa kr. 431 millj. Styrkir til fráveitna sveitarfélaga nema hins vegar 220 milljónum króna!
Fundur um fjarnám í
menntamálaráđuneytinu
Viđ Steinunn fórum á fund í mmrn. um fjarnám ţar sem voru auk nefndarmanna Ingimar fjarkennslustjóri VMA og Ásrún Matthíasdóttir. Umrćđur voru líflegar og menn voru sammála um ađ fjarnám ćtti ađ ţróast og eflast í friđi, ţađ vćri kennsluađferđ eins og hver önnur og eđlilegt ađ menn kenndu á ýmsa vegu.
Betts sýningin
Skólinn greiđir ferđir og hótelkostnađ fyrir ţrjá ađ ţessu sinni, Björgu Árndóttur, Eddu Láru Kaaber og Ţórunni Óskarsdóttur.
Stöđumat í áfanga
Miđannarmatiđ verđur afhent áđur en haustfrí verđur gefiđ.
Ţví ţarf ađ skila eigi síđar en kl. 15.00 nćstkomandi fimmtudag 9. október.
Áfangastjóri mun senda leiđbeiningar um hvernig á ađ skrá ţađ og
viđmiđunarreglur.
Moli vikunnar
Kennarafélag skólans hélt fund 21. október áriđ 1981. “Fundarstjóri: Krsitín Norđfjörđ; ritari Jón A. Harđarson. Fundur settur. Hafsteinn Stefánsson ţakkađi kennurum störf sín viđ spjaldskrárvinnu.
1. mál: Kennarafélagsgjöld. Jón Dagsson bar fram ţá tillögu, sem samţykkt var, ađ gjaldiđ yrđi 100 krónur.
2. mál. Ráđuneytisbréf um starfshćtti áfangaskóla. Elín Vilhelmsdóttir hafđi framsögu í ţessu máli. Umrćđur snerust um einkunnakerfiđ. Eftirtaldir kennarar tóku til máls: Sigrún Gísladóttir, Kristján Thorlacius, Jón Dagsson, Elísabet Gunnarsdóttir, Ragna Jónsdóttir, Kristín Norđfjörđ, Eiríkur Brynjólfsson, Helmut Hinrichsen, Sölvi Sveinsson, Jóna Guđmundsdóttir, Salvör Gissurardóttir, Gerđur Magnúsdóttir, Hafsteinn Stefánsson.
Kannađ var, hver hugur kennara vćri í ţví máli; 16 greiddu bókstafakerfinu atkvćđi, en 6 tölustafakerfinu.”
Ţetta var sem sé hitamál á ţessum tíma. Man nú nokkur eftir spjaldskrárvinnu?
Sölvi Sveinsson