Vikupistill

4.  apríl 2005

1. Umsjónarfundur

Fundur nemenda með umsjónarkennurum verður haldinn miðvikudaginn 6. apríl. Kennt er 13.10 – 13.30 og síðan fara nemendur og kennarar í umsjónartíma til kl. 14.10. Umsjónarkennarar eru beðnir að hafa eftirfarandi minnispunkta til hliðsjónar:

 

·   Skólagjöld vegna haustannar 2005: Gíróseðlar verða sendir út í maí (seinna en verið hefur)

 

·   Val:  Nemendur sem enn hafa ekki gengið frá vali sínu geri það nú og fái aðstoð umsjónarkennara ef þeir þurfa. Gott er að útskýra fyrir nemendum mikilvægi valsins, þ.e. að námsframboð á haustönn byggir á þessum upplýsingum frá nemendum. Ef fáir velja áfanga þá fellur hann niður.

 

·   Námsáætlanir: Rúmlega 70 námsáætlanir hafa borist skrifstofu. Best er að nemendur skili áætlunum til umsjónarkennara sem kemur síðan eintaki á skrifstofu. Þannig geta kennarar fylgst með hvaða nemendur eiga eftir að skila.

 

·   Mætingar: Nú eru 18 kennsludagar eftir (4. til og með 28. apríl). Nemendur sem eru undir 85% í mætingu missa námseiningu. Með því að mæta 100% í apríl má bæta stöðuna töluvert. Sem dæmi má nefna að nemandi sem er með 80% mætingu í dag, getur hækkað í 86% með því að mæta 100% í apríl.

 

·  Kosning í nemendaráð: Hvetja nemendur til þess að taka þátt, sérstaklega stelpurnar, en þær eru 70% af nemendum skólans og hreint ekki í lagi að hafa eingöngu stráka í stjórn nemendafélagsins. Umræða um þessi mál afar æskileg. Einnig eru kennarar hvattir til þess að hnippa í nemendur sem þeir telja að eigi erindi í stjórnina.

 

2. Skólakynning

Í hádeginu á morgun verður kynning á hinni nýju tækni- og verkfræðideild HR,  í stofu A11. Kynningin er sérstaklega ætluð nemendum á náttúrufræðibraut, ekki bara fyrir útskriftarnema heldur alla nemendur á náttúrufræðibraut. Vinsamlega hvetjið nemendur til að mæta, nauðsynlegt er að skrá sig á listann sem hangir á töflunni við Hnetulund því boðið verður upp á gos og pizzur. Listinn hangir uppi til kl. 11.00

 

3. Kennarafundur 8. apríl

 

Kennarafundur verður haldinn föstudaginn 8. apríl kl. 13.00 á kennarastofu. Dagskrá:

 

1. Spurningalisti: Guðbjörg Aðalbergsdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga er að ljúka mastersnámi í stjórnun og fjallar um brottfall úr framhaldsskólum. Hún skoðar ýmsa þætti í innra starfi skólanna og hvort þeir hafi áhrif á brottfall. Guðbjörg óskar eftir aðstoð okkar við þetta verkefni með því að svara spurningalista. Guðbjörg segir að það taki um 10 mínútur að svara listanum. (Bréf Guðbjargar er á auglýsingatöflu á kennarastofu).

 

2. Kjaramál: Fundur í umsjón Kennarafélags FÁ.

 

Til athugunar: Nú eru aðeins 18 kennsludagar eftir af önninni. Ég bið kennara að minna nemendur á þessa staðreynd og að þeir geti ennþá bætt mætingarprósentuna.

 

Gísli