Vikupistill

31.  janúar 2005

 

Umhverfismál

Tillaga að umhverfisstefnu skólans fylgir hér í lok pistilsins. Ætlunin er að þessi tillaga verði tekinn fyrir á næsta fundi skólanefndar. Athugasemdir við tillöguna eru vel þegnar og sendist til Heiðu Bjarkar Sturludóttur heida@fa.is. Föstudaginn 4. febrúar kl. 13.00 verður haldinn fundur á kennarastofu þar sem fulltrúar Landverndar kynna Grænfánann.

 

Próftafla vorið 2005

Vegna samræmdra stúdentsprófa er nauðsynlegt að breyta nokkuð fyrirkomulagi vorprófanna. Prófin hefjast föstudaginn 29. apríl og þeim lýkur með sjúkraprófum 17. maí.

 

Söngkeppni og dansleikur

Söngkeppni nemenda verður haldin fimmtudaginn 3. febrúar kl. 15.00 í Austurbæjarbíó. Dansleikur verður sama kvöld. Kennsla fellur því niður eftir kl. 14.10 fimmtudaginn 3. feb. og í fyrsta tíma kl. 8.10-9.10 föstudaginn 4. febrúar.

 

Gul spjöld

Brýnt er að foreldrar nemenda yngri en 18 ára fái vitneskju um að unglingurinn þeirra mæti ekki nógu vel í skólann. Stjórnendur skora því á alla kennara að skila gulum miðum til skrifstofunnar, einkum þó þegar yngri nemendur eiga í hlut.

 

Námsáætlanir

Umsjónarkennarar eru beðnir um að sjá til þess að umsjónarnemendur þeirra geri námsáætlun. Allir nemendur/umsjónarkennar eiga að skila námsáætlunum til skrifstofu fyrir 1. mars.

 

Ráðherraheimsókn

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra kom í heimsókn í FÁ fimmtudaginn 27. janúar kl. 9.00. Í för með henni voru Karl Kristjánsson deildarstjóri framhaldsskóladeildar og verkefnisstjórarnir Oddný Hafberg og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir. Ráðherrann ræddi fyrirhugaðar breytingar á námskrá skólastiganna þriggja, leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Samkvæmt þessum tillögum á að endurskoða allar námskrár með það í huga að stytta námstímann til stúdentsprófs. Þetta verður m.a. gert með því að færa námsefni til grunnskólans og auka námsefni einstakra áfanga í framhaldsskólanum. Ráðherrannn fékk margar gagnlegar ábendingar frá starfsmönnum FÁ.

 

Frá Framvegis

Margvíslegar hliðar lýðheilsu verða viðfangefnin í röð sex fyrirlestra Framvegis, sem verða á miðvikudagskvöldum frá 16. febrúar. Fátækt, streita, vinnuumhverfi og mataræði eru allt áhrifaþættir á heilsufar. Fyrirlesararnir eru allir afar færir á sínu sviði.

Einstaklingar sem eiga við lestrar- og skriftarörðugleika að etja eiga nú brýnt erindi við Framvegis, sem býður aftur upp á námskeið fyrir þá eftir nokkurt hlé. Einstaklingsviðtöl og a.m.k. lágmarks greining fer fram áður en námskeiðin hefjast. Tölvutæknin er notuð við kennsluna auk annars og eru aldrei fleiri en 8 einstaklingar í námshópi. Kennararnir eru afar færir og reynsluríkir á þessu sviði, en það eru þær Auður Kristinsdóttir og Rannveig Lund.

Fræðslusetrið Starfsmennt og Framvegis hafa unnið námskrá fyrir endurmenntun læknaritara og er stefnt að því að námið hefjist í mars næstkomandi. Fimm fagaðilar hafa unnið að námskránni sem vel hefur verið vandað til,  þar á meðal eru FÁ-konurnar Guðrún Narfadóttir, kennslustjóri læknaritara- og nuddbrautar og Selma Guðnadóttir, kennari í læknaritun. Megin námsþættir verða almennt starfsumhverfi, tölvufærni, tungumál og einstaklingsbundnir hæfnisþættir.

 

Gísli Ragnarsson

 

 

Fylgiskjal

 

Umhverfisstefna Fjölbrautaskólans við Ármúla

 

Skólar eru að mörgu leiti hornsteinar hvers samfélags. Ungir hugar eru mótaðir til framtíðar og kapp lagt á að miðla til nemenda þeim gildum sem samfélagið vill að séu ríkjandi á hverjum tíma. Því er mikilvægt að skólar landsins sinni umhverfismálum af alúð og einlægni. Fjölbrautaskólinn við Ármúla telur hlutverk sitt mikilvægt við að auka umhverfisvitund í samfélaginu með því að sýna nemendum gott fordæmi við  rekstur og stjórnun skólans. Skólinn mun hafa  umhverfissjónarmið og verndun  náttúrunnar að leiðarljósi jafnt í daglegum athöfnum og í stefnumótun til framtíðar. Vinna innan skólans mun taka tillit til sjálfbærrar þróunar þegar því verður við komið.

 

Umhverfisaðgerðir

 

Umhverfisaðgerðum er forgangsraðað neðar í skjalinu. Það mun verða unnið að öllum eftirtöldum aðgerðum og stefnt að því að þær verði allar komnar í framkvæmd fyrir 2010.

 

q           Vatn

o                                     Vatnshani – stuðla að aukinni vatnsdrykkju og um leið minni neyslu gosdrykkja/ávaxtasafa/kaffis – betri heilsa og minna sorp vegna drykkjaríláta.

o                                     Nota sem minnst af eiturefnum við hreingerningar og nota ávallt umhverfisvottaðar hreingerningavörur þegar því verður við komið .  Þannig verður reynt að koma í veg fyrir mengun vatns og um leið styrkja  vörumerki, þar sem mengun umhverfis er haldið í lágmarki við framleiðslu þeirra.

o                                     Fræðsla – Upplýsingaskilti hjá vatnshana um kosti vatnsdrykkju.

q           Innkaup

o                                     Leggja áherslu á vörur sem eru vottaðar vistvænar, s.s. vörur merktar Túni, Bláa englinum, Hvíta svaninum eða Evrópublóminu.

o                                     Leitast við að kaupa inn vörur sem ekki eru með óþarflega miklum umbúðum.

o                                     Lögð áhersla á að kaupa vandaðar vörur sem endast vel.

q           Orka

o                                     Fara sparlega með orku með því að slökkva á tækjum og slökkva ljós þegar vinnu við þau hefur verið lokið í lok vinnudags.

o                                     Nota sparperur sem nota minni orku og endast lengur.

o                                     Þegar tæki eru endurnýjuð skal leitast við að kaupa orkusparandi tæki í staðinn og helst umhverfisvottuð, s.s. tölvur, ísskápa o.s.frv.

q           Sorp

o                                     Farga spilliefnum á viðurkenndan hátt með sem minnstum umhverfisspjöllum.

o                                     Endurvinna bylgjupappa sem til fellur ásamt fernum, dagblöðum og tímaritum, gæðapappír, áldósum, rafhlöðum.

o                                     Setja fram hjá nemendum tunnu fyrir ónýtar rafhlöður, fernur, dagblöð og tímarit.

o                                     Skjöl sem eru meira en ein síða eru prentuð á báðar hliðar blaðs.

q           Samgöngur

o                                     Hvetja nemendur og starfsfólk til þess að hjóla eða ganga í auknum mæli.

§                                                               Sturtur fyrir starfsmenn sem kjósa að hjóla í vinnuna. Stuðlar auk þess að heilsurækt starfsfólks sem vill hreyfa sig í hádeginu s.s. skokka.

§                                                               Hjólagrindur verði settar upp.

§                                                               Nemendur hvattir til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga í skólann.

·                                                                                      Mögulega er hægt að meta það á einhvern hátt til tekna hjá þeim starfsmönnum og nemendum sem ekki koma á bíl, þar sem mikill kostnaður fer orðið í viðhald bílastæða og sífellt þarf að leggja aukið svæði undir bílastæði.

q            Umhverfi skólans

o                                     Sorptunnum verði komið fyrir utandyra á nokkrum stöðum til að koma í veg fyrir að rusli sé hent á skólalóð.

o                                     Lóð í kringum skóla verði vel hirt og ákjósanleg til útivistar.

o                                     Umhverfi nemenda innanhúss verði gert hlýlegt og aðlaðandi með lifandi plöntum og með því að skreyta veggi með litum og málverkum sem gleðja augað og næra andann.

o                                     Fræðslu/áróðursskiltum verður komið fyrir við reykingaaðstöðu og við inngang vestanmegin.

q           Fræðsla

o                                     Bjóða upp á valáfanga í vistvænum lífsháttum sem standi bæði nemendum og kennurum til boða.

o                                     Hægt verður að byggja upp umhverfisbraut  við skólann þar sem boðið verður upp á margvíslega áfanga tengda umhverfismálum.

o                                     Alþjóðlegir og innlendir umhverfisverndardagar s.s. dagur umhverfisins og umferðarvikan verði notaðir til umhverfisfræðslu.

o                                     Efla umhverfisvitund og áhuga starfsmanna á mikilvægi umhverfismála og kynna stefnu skólans í málaflokknum. Til að ná þessu marki munu reglulega haldin námskeið fyrir starfsfólk, fræðslu komið á framfæri í skjáauglýsingum skólans og dagbók nemenda og kennara notuð til umhverfisfræðslu.

o                                     Setja upp nauðsynlegar verklýsingar og leiðbeiningar og fylgja þeim eftir.

q           Eftirlit/Endurmat

o                                     Umhverfisaðgerðir og umhverfisstefna verða endurskoðaðar reglulega eða að lágmarki einu sinni á ári.

 


 

Verkefnum raðað í forgangsröð

§             Sorp

1.                                    Nú þegar hefur verið hafist handa við flokkun sorps. Gámur fyrir gæðapappír hefur verið staðsettur við vestanvert húsið og endurvinnslukössum fyrir gæðapappír hefur verið dreift á vinnuherbergi kennara, skrifstofur og í ljósritunarherbergi.

2.                                    Endurvinnsla á tímaritum og dagblöðum er hafin. Tunnu hefur verið komið fyrir í matsal nemenda sem tæmd er eftir þörfum.

 

 

Framkvæmd og stjórnun umhverfisstefnu

Kostnaður

 

FÁ mun sækja um styrk til þess að standa straum af umhverfisaðgerðunum og þeirri umsýslu sem þeim fylgir. Kostnaður er margvíslegur í upphafi en þegar fram vindur mun heildarútkoma fyrir skólann vera sparnaður enda er ódýrara að farga flokkuðu sorpi en óflokkuðu svo dæmi sé nefnt.

 

1.            Endurvinnsla sorps

a.                                    Gámur fyrir gæðapappír frá Gámakó (hófst vor 2004)

        i.                                                            660 l gámur leigist á 72 krónur á dag

b.                                    Gámur fyrir dagblöð og tímarit frá Gámakó ( hefst haust 2004)

        i.                                                            660 l gámur leigist á 72 krónur á dag

c.                                    Flokkunarkassar fyrir gæðapappír

        i.                                                            50 l kassar 12 stykki keyptir frá IKEA á 11. 880 kr

2.            Umsýsla umhverfisfulltrúa vegna skipulagningar og sendiferða

a.                                    Bensínkostnaður á mánuði  1000 kr

b.                                    Símakostnaður á mánuði  200 kr

c.                                    10 vinnustundir á mánuði 

 

 

Skipulag

Skólanefnd þarf að samþykkja stefnu skólans í umhverfismálum. Síðar verður umhverfisnefnd stofnuð þar sem allir hópar sem koma að skólastarfinu eiga sinn fulltrúa. Að auki munu nemendur hafa sérstaka umhverfisnefnd.

 

Skólinn stefnir að því að fá Grænfána fyrir umhverfisstefnu sína og mun styðjast við umhverfisgátlista frá Grænfánaverkefninu.

 

Í Umverfisnefnd munu eiga sæti umhverfisfulltrúi, skólameistari, tveir fulltrúar kennara, fulltrúi frá Heilbrigðisskóla, fulltrúi nemenda, fulltrúi ræstingafólks og umsjónarmaður ásamt starfsmanni úr eldhúsi.

 

Í umhverfisnefnd nemenda munu 4 nemendur eiga sæti.  Einn þessara fjögurra nemenda mun auk þess eiga sæti í Umhverfisnefnd skólans og fá fyrir setu sína þar eina einingu á misseri.