2. apríl 2004
Norđmenn og
Danir í heimsókn
Síđastliđinn miđvikudag komu í
heimsókn Norđmenn, nemendur úr framhaldsskóla og kennarar ţeirra. Ţau fóru inn
í tima hjá Margréti sögukennara og töluđu viđ nemendur um sameiginlegar
sögulegar rćtur. Eftir ţađ kynnti Stine fyrir ţeim skólann og skólakerfiđ
okkar.
Á ţriđjudaginn komu svo ţrír Danir og einn Íslendingur til ađ auglýsa nám í Danmörku viđ Facit Erhvervsakadami í Horsens og Vejle. Ţau kynntu fyrir nemendum okkar (DAN 403) kerfisfrćđi- og matvćlafrćđisnám.
Skólinn hefur
fengiđ nýjan tengiliđ í ráđuneyti, Ernu Árnadóttur. Viđ snúum okkur til hennar
međ margvísleg erindi sem ađ skólanum lúta og samskiptum hans viđ
ráđuneytisfólk. Ég geri ráđ fyrir ađ margir ţekki hana, ađ minnsta kosti
móđurmálskennararnir.
Í dagbókinni
minni er klausa viđ hvern mánudag og síđastliđinn mánudag var ţetta haft eftir
Margréti Thatcher: “Ég skil ekki ţessar kvartanir út af námslánunum. Carol
dóttir okkar lagđi fyrir af sínum. Auđvitađ borguđum viđ skíđafríin hennar.”
Svo ţá er spurningin hvort breskir stúdentar fari yfirleitt í skíđafrí?
Vćntanlega munu
arkitektar leggja hugmyndir fyrir ráđuneytiđ nú eftir helgi og í kjölfariđ fáum
viđ vćntanlega glađninginn. Ég mun senda bygginganefnd skýrsluna um leiđ og hún
berst mér í hendur.
Viđ Ólafur munum
hitta ráđuneytismenn á mánudaginn til skrafs um skólasamning.
Höfuđviđfangsefniđ er ađ fá ársnemendatölu upp á 950, en annars eru ýmis mál
til umrćđu, svo sem félagsliđabraut, nýbúar og starfsdeild viđ Safamýri.
Vorfundur
samstarfsnefndar framhaldsskólastigsins var haldinn í gćr, en hann sitja allir
skólameistarar, ráđuneytisfólk og ráđherra ávarpar fundarmenn og svarar
fyrirspurnum. Ţetta var ágćtur fundur og ýmislegt kom ţar fram. Skipulagi
ráđuneytis hefur veriđ breytt ţannig ađ framhaldsskóla- og
fullorđinsfrćđsludeild, grunnskóla- og leikskóladeild hafa veriđ sameinađar í
einni skóla- og símenntunardeild. Karl Kristjánsson er deildarstjóri.
Eftir ţennan fund er ég sannfćrđur
um ađ nám til stúdentsprófs verđur stytt. Sá andi sveif yfir vötnum. Mesta
vinnan er í undirbúningshóp um námskrá og gćđamál, en sá hópur hefur hist 29
sinnum. Skólaáriđ verđur vafalaust lengt, jafnvel upp í 190 daga. Tilteknir
námsţćttir verđa fluttir í grunnskóla sem fćr nýja námskrá, en námskrá
framhaldsskóla verđur endurrituđ međ hliđsjón af ţví og lengra skólaári. Ţetta
leiđir til ţess ađ námskrár starfsmenntabrauta verđa endursamdar. Spurning er
hvort litlir grunnskólar ráđa viđ ađ kenna efni sem nú er í framhaldsskóla og
jafnframt vaknar spurning um hvort ekki ţurfi ađ efla og breyta kennaramenntun.
Innan tíđar verđa allir áfangar í
námskrá ađgengilegir á heimasíđu ráđuneytis á ensku og dönsku.
Til framhaldsskóla renna árlega um
10 milljarđar. Á síđasta ári nam hallarekstur 70 milljónum sem er lítiđ
hlutfall af svo stórri upphćđ. Uppsafnađur vandi skólanna er nú 580 milljónir.
Almennur hluti námskrárinnar hefur
nú veriđ endurskođađur og er á netinu. Henni verđur dreift í skólanum innan
tíđar.
Innritun í skólana lýkur föstudaginn
11. júní, svo ćtla má ađ kennsluskipting liggi ekki fyrir fyrr en undir
júnílok.
Undirritađur fer
á fund í norrćnni málnefnd miđvikudaginn 14. apríl og í framhaldi af ţví í
snemmbćrt sumarfrí nokkra daga. Verđ aftur á vettvangi dagsins miđvikudaginn
21. apríl.
Sölvi
Sveinsson