Vikuskammtur
27.
október 2003
Reglugerð
um fjarkennslu
Nefnd sú sem undirritaður situr í er nú að ljúka störfum. Niðurstaðan verður væntanlega birt innan tíðar og því ekki rétt að tíunada einstök atriði. Nefndin fjallaði einnig talsvert um eftir hverju ætti að forgangsraða nemendum ef aðsókn væri umfram fjárheimildir skóla, ekki einungis í fjarnám, heldur einnig í dagskóla.
Samkeppni
ungra vísindamanna
Ólafur kynnti þátttöku okkar fyrir skólameisturum og háskólamönnum á árlegum samstarfsnefndarfundi framhaldsskólanna og Háskóla Íslands í dag. Fyrirhugað er að búa til sérstakan áfanga í skólum til þess að efla þátttökuna. Annars var aðalefni fundarins stytting náms til stúdentsprófs og samræmd próf. Framsögumenn voru Lárus H. Bjarnason, Már Vilhjálmsson, Hörður Lárusson, Oddný Harðardóttir, Ágúst Einarsson og Þorsteinn Vilhjálmsson. Niðurstaða var nokkuð skýr. Menn vilja að grunnskólinn sé líka tekinn með, að inntak hins stytta skóla verði ásættanlegt og þar fram eftir götum. Menn höfðu áhyggjur af starfsnámi í þessu samhengi. Forsetar laga- og viðskiptadeilda skutu föstum skotum á framhaldsskóla, sögðu þá undirbúa nemendur illa. Þeir kynnu hvorki að skrifa né reikna!
Evrópustyrkur
í upplýsingatækni
Skólinn sækir um stóran þróunarstyrk í
upplýsingatækni í samvinnu við skóla í Noregi, Danmörku, Mallorca,
Þýskalandi og Portúgal. Steinunn fjarnámsstjóri og Kristen
sjá um að sækja.
Samstarfsnefndarfundur
framhaldsskólastigsins
Þessi nefnd hittist tvisvar á ári. Í henni sitja allir skólameistarar og ýmsir embættismenn úr ráðuneytinu og ráðherra sækir fundinn að hluta. Aðalmál fundarins að þessu sinni verður enn og aftur stytting náms til stúdentsprófs, en þó má fullvíst telja að fjármál verði ofarlega á baugi, enda vantar fé til reksturs skólanna. Undirritaður verður á þessum fundi næstkomandi fimmtu- og föstudag í Reykholti.
Stofumál
Ef menn eru með námskeið eða eitthvað slíkt í
stofum utan kennslutíma þarf að skrá það á töflu sem er á gangi við fatahengi.
Þetta er nauðsynlegt vegna ræstinga og umsjónar.
Safamýrarmál
Við Ólafur höfum átt fundi með ýmsum aðilum vegna fyrirhugaðrar stofnunar sérdeildar fyrir fjölfatlaða. Ekki eru öll kurl komin til grafar, en undirritaður mun funda í vikunni ásamt Karli Kristjánssyni deildarstjóra með Safamýrarfólki. Margir hafa sótt um stöðu kennslustjóra og sérkennslu.
Stuðningsfulltrúar
Framvegis brautskráði á föstudaginn hóp stuðningsfulltrúa úr endurmenntun og er vert að vekja athygli á því að námið er metið til eininga, en Þórður Sigurðsson og Eyjólfur Bragason hafa annast matið. Það er framfaraskref en mér er nær að halda að skólinn hér sé í fararbroddi hvað varðar mat á fyrra námi og reynslu til eininga.
Meistarapróf
Hún Þórunn Óskarsdóttir varði í síðustu viku í
KHÍ meistaraprófsritgerð sína um lausnaleitarnám og gekk auðvitað mjög vel. Til
hamingju!
Nýr
tengiliður í ráðuneyti
Eygló Eyjólfsdóttir sem er tengiliður skólans í menntamálaráðuneytinu er í veikindaleyfi. Á meðan er Aðalsteinn Eiríksson í hlutverki hennar. Hann mun því stýra viðræðum um skólasamning fyrir árið 2004 sem senn hefjast. Þar kemur m.a. til umræðu hvot skólinn bjóði upp á nám fyrir félagsliða, en um það hefur verið sótt. Sú braut er að langmestu leyti til innan skólans og einungis þarf að bæta við tveimur til þremur áföngum. Einnig ber að hafa í huga að námið rekst sérstaklega vel með sjúkraliðabraut.
Umræða um styttingu náms
Lítið inn í menntagatt.is og rennið yfir umræðuna um styttingu náms til stúdentsprófs.
Fróðlegur
fyrirlestur
Bjarni Bjarnason framkvæmdastjóri hélt ánægjulegan og vekjandi fyrirlestur á föstudaginn og hefðu raunir fleiri mátt hlýða á hann. Mér finnst alltaf dálítið lærdómsríkt að sjá og heyra hvað aðrir eru að spá í, þótt á gjörólíkum vettvangi sé.
Smávegis
úr Finnlandsreisu
Finnsk pólitík er sérstök. Kratar og Framsóknarmenn eru með um það bil 25% hvorir, gamalkommar eiga hljómgrunn og Sjálfstæðisflokkurinn er með um það bil 20%. Græningjar hafa góða kjölfestu og eru stærsti flokkurinn í stærsta sveitarfélaginu, Helsingfors. Síðan eiga sænskumælandi sinn flokk, sem er fremur til hægri en vinstri og er með meira fylgi en sem nemur hlutfalli sænskumælandi Finna. Eilífar samsteypustjórnir nokkurra flokka sem semja út og suður um einstök mál.
Örlítil
upprifjun
Fimmtudaginn 30. október árið 1997 hef ég bókað eftirfarandi í minniskompu: “Sum störf í skólum eru eins og langavitleysa: standa yfir að eilífu eða því sem næst. Þeirra á meðal er fjarvistaeftirlit, það koma nefnilega alltaf nýir sauðir í stað þeirra sem snúa sér að öðru eða tekst að klóra sig í gegn.”
Moli
vikunnar
Hjálmar Freysteinsson læknir á Akureyri orti meðfylgjandi limru um kunningja sinn og ég fékk í pósti á dögunum:
Þó velflestum um hann sé annt,
örfáir telji hann fant,
hann einkennir geysi-
legt ístöðuleysi,
vantar viðlegukant.
Sölvi
Sveinsson