Vikuskammtur

27. september 2004

 

Leonardoverkefni tilnefnt til verðlauna

Leonardoverkefni sjúkraliðadeildar þar sem sjúkraliðar okkar fóru í starfsþjálfun til Danmerkur hefur nú verið tilnefnt ásamt nokkrum öðrum verkefnum til sérstakra verðlauna.

 

Stefnumótunarvinna

Ég sá ekki betur en menn ynnu kappsamlega í hópunum síðastliðinn föstudag. Vinnunni verður fram haldið á föstudaginn kemur. Hafi einhver hópur lokið sínu starfi eru menn velkomnir í aðra hópa.

 

Námskeið í skyndihjálp

Á vikulegum fundi skólayfirvalda og kennslustjóra Heilbrigðisskólans kom fram að nauðsynlegt væri fyrir kennara að fá fræðslu í skyndihjálp. Reynslan hefur sýnt að fái nemandi t.d. flog í skólanum verða viðbrögðin yfirleitt fátkennd og ómarkviss. Því hefur verið ákveðið að bjóða starfsmönnum upp á 6 kennslustunda námskeið í skyndihjálp sem verður haldið kl. 13.00-17.00 föstudaginn 5. nóvember ef næg þátttaka fæst. Verði þátttakendur fleiri en 20 verður leiðbeinendum Rauða krossins fjölgað. Kennarafundi þennan dag yrði þá frestað. Hverjir hafa hug á að taka þátt í slíku námskeiði? Vinsamlega sendið mér þátttökutilkynningu.

 

Ungir vísindamenn á Írlandi – og Ólafur líka!

Hrafn Þórisson nemandi og ungur vísindamaður hélt til Dyflinnar síðastliðinn föstudag með gervi-greindar-kvikindi sín á tölvutæku formi. Ólafur H. fór síðan á laugardaginn, en hann fer í boði Rannsóknaþjónustu háskólans. Vonandi gengur þeim allt í haginn!

 

Norsk heimsókn

Þriðjudaginn 21/9 tók Stine ráðherra norrænna mála  á móti 13 Norðmönnum,  kennarum frá Ringsaker Videregående Skole (http://www.ringsaker.vgs.no/main.htm)

Þeir höfðu serstakan áhuga á fræðast um Heilbrigðisskólann og fjarnámið. Það fer kannski verða útflutningsvara, ef nám getur á annað borð verið vara?

 

Danmerkurferð lyfjatækna og lyfjatækninema

Þann 16.sept. fór 19 manna hópur lyfjatækna, lyfjatækninema og kennara í þriggja daga skólaferðalag (vísindaferð) til Danmerkur. Voru þetta 6 útskrifaðir lyfjatæknar (síðan vorið 2004), 3 sem útskrifast jólin 2004, 8 sem útskrifast á næsta ári og 2 kennarar við brautina. Farið var í heimsókn í lyfjatækniskólann Pharmakon sem staðsettur er í Hillerød í úthverfi Kaupmannahafnar. Móttökur í skólanum voru hreint út sagt frábærar. Eftir hafa fengið greinargóða kynningu á námskrá skólans og annarri starfsemi hans, skoðuðum við húsakynni skólans (þ.á.m. fullbúið kennsluapótek!). lokum var okkur svo boðið til glæsilegs hádegisverðar (eins og á 5 stjörnu hóteli). Nemendur vildu margir hverjir verða eftir í skólanum... Fyrirhugað var skoða stórt apótek á Kaupmannahafnarsvæðinu, en á síðustu stundu fengum við frétta ekki yrði hægt taka á móti okkur sökum manneklu í apótekinu. Hins vegar fórum við í minni hópum í vettvangsferðir í nokkur apótek í Kaupmannahöfn þar sem við skoðuðum úrval lausasölulyfja, uppstillingar o.fl. Reyndar fannst okkur ótrúlegt hvað lítið var um apótek í miðbænum.  Fyrir utan þessar heimsóknir, stikuðum við Strikið, skruppum í tívolí, fórum saman út borða og skoðuðum mannlífið.

 

Damien Rice

Ólyginn sagði mér og ég trúði umræddur maður væri heimsþekktur tónlistarmaður. Hann skemmti hér síðastliðinn fimmtudag og tókst vel; nemendur voru kátir. Listamaðurinn tók ekkert fyrir sinn snúð, en krafðist þess nemendur létu ákveðna upphæð renna til góðgerðarmála.

 

Umhverfisstefna

Unnið er að því að semja skólanum umhverfisstefnu og á Heiða Björk heiðurinn að því. Víða eru nú kassar fyrir gæðapappír og tunnur fyrir glanspappír. Fleira er á döfinni og verður kynnt síðar, en þetta er löngu tímabært átak sem öllum ber að fylgja eftir.

 

Tilhliðranir í stundaskrá

Stundaskrárgerð er sífellt til umræðu. Á fundi samstarfsnefndar hefur málið borið á góma. Í framhaldi af því vil ég árétta að starfsmanni í fullu starfi er óheimilt að ráða sig til starfa annars staðar í hlutastarf nema með leyfi skólameistara. Ekki er hægt að verða við töfluóskum vegna slíkra tilvika. Hins vegar er eðlilegt að koma til móts við tímabundin vandamál, t.d. vegna smábarna, veikinda o.s.frv.

 

Gagnvirk tafla

Loksins, loksins. Skólinn er búinn að eignast töflu sem kennir sjálf. Hún er kölluð gagnvirk af þeim sökum og er í stofu M35. Jóna mun tilraunakenna á þessa töflu og sýna síðan okkur hinum hvernig apparatið virkar. Reynslan af töflunni verður síðan metin með það í huga hvort borgi sig að kaupa fleiri.

 

Raungreinastofur

Þýsku innréttingarnar eru komar til landsins og verða settar upp núna í vikunni undir stjórn manns sem kemur frá verksmiðjunni. Á meðan fer kennsla fram í Síðumúla 1.

 

ADSL tengingar

Nú þegar hafa 50 starfsmenn skráð sig hjá netstjóra fyrir ADSL tengingum. Hinir fyrstu verða tengdir 1. október, en þá tekur samningurinn við Símann gildi.

 

 


Hagstofan

 

 

 

 

 

 

 

 

Hagstofa Íslands hefur tekið saman yfirlit yfir hafi lært þrjú erlend tungumál skólaárið 2002-2003.

Tæplega 70% íslenskra framhaldsskólanema læra erlend tungumál
Skólaárið 2002-2003 lögðu 14.696 framhaldsskólanemar stund á nám í einhverju erlendu tungumáli eða 68,8% nemenda, 64,6% drengja og 72,6% stúlkna. Nemendum í erlendum tungumálum hefur fækkað lítillega frá árinu 1999, þegar Hagstofa Íslands safnaði þessum upplýsingum fyrst, en þá stunduðu 70,3% framhaldsskólanema nám í erlendum tungumálum.

Spænska sækir á í framhaldsskólunum
Flestir framhaldsskólanemendur læra ensku, eða rúmlega 12 þúsund (12.333) skólaárið 2002-2003. Danska kemur þar næst á eftir en rúmlega 7 þúsund (7.345) nemendur stunduðu dönskunám þetta sama ár. Þessi tungumál eru skyldunámsgreinar hjá flestum framhaldsskólanemum.
       Þýska er þriðja algengasta erlenda tungumálið en skólaárið 2002-2003 voru rúmlega 5 þúsund (5.116) nemendur skráðir í þýskunám, 23,9% nemenda. Franska kemur næst á eftir þýsku en 2.407 nemendur lærðu frönsku, 11,3% nemenda. Þýsku- og frönskunemum hefur fækkað lítillega frá haustinu 1999 þegar 26,7% framhaldsskólanemenda lærðu þýsku og 12,5% lærðu frönsku. Hins vegar sækir spænska á og völdu 1.855 nemendur spænsku þetta skólaár, 8,7% framhaldsskólanema; um tvöfalt fleiri en haustið 1999, þegar 4,4% framhaldsskólanema stunduðu spænskunám. Athygli vekur mikill kynjamunur kemur fram í rómönskum málum, þar sem mun fleiri stúlkur læra rómönsk mál en piltar. Þannig eru stúlkur yfir 70% nemenda í frönsku og spænsku, og meira en 80% nemenda í ítölsku.

 

 

 

Sölvi Sveinsson