Vikuskammtur

26. maí 2004

 

Stefnumótunarferð

27 starfsmenn voru mánudag og þriðjudag austur á Hótel Heklu með Hákoni Gunnarssyni í stefnumótunarumræðum. Vinnan fólst í því að taka saman þau tækifæri sem væru til úrbóta í starfi skólans og safnaðist mikið í sarpinn. Umræður voru opinskáar og afskaplega ánægjulegar og menn komust að ákveðinni niðurstöðu um þau efni sem þeir voru kannski ósammála um í upphafi. Framhaldið verður með þeim hætti að Hákon kemur á fyrsta kennarafund í haust, fimmtudaginn 19. ágúst, leggur fram skýrslu og fjallar um innhald hennar kl. 10-12. Stýrihópur um sjálfsmat verður þá væntanlega búinn að leggja línur fyrir næstu skref, en markmiðið er að setja upp skýra áfanga og tímasetja þá.

 

Umsóknir

Nú hafa borist tæplega 300 umsóknir um skólavist og er aðsókn jöfn og mikil. Á þriðja hundrað hafa skráð sig í fjarnám, en skráningu lýkur á miðnætti 1. júní.

 

Nýr Íslendingur

Þau tíðindi urðu á Alþingi Íslendinga í gær, milli fjölmiðlalaga og umræðna um sjávarútvegsmál, að þingmenn samþykktu að veita henni Patriciu íslenskan ríkisborgararétt. Þetta gerðist stundvíslega kl. 21.07 í gær!!! Til hamingju, Patricia!

 

Bygginganefndarfundur

Bygginganefnd fundar í dag og kl. 12.00 koma arkitektar hússins. Nefndin mun þá kynna þeim viðhorf sín til frumdraganna.

 

Ítalía

Í bítið í fyrramálið fara 68 manns úr skólanum, að nokkrum mökum meðtöldum, til Ítalíu þar sem hópurinn mun heimsækja skóla og skoða sig um. Góða ferð!

 

Sölvi Sveinsson