Vikuskammtur

26. apríl 2004

 

eLearning

Nú er hægt að sækja um eLearning verðlaunin sem Sigurlaug og María fengu um árið. Nánari upplýsingar á Menntagáttinni eða hjá Birni Sigurðssyni í mmrn.

 

Nýjar námskrár á ensku

Ráðuneytið vinnur nú að því að koma út námskrám framhaldsskólans á ensku. Það er mjög þarft framtak og eru nú fyrstu greinaflokkarnir komnir út. Almennur hluti er í þýðingu.

 

Brúarsmíði fyrir hjúkrunar- og móttökuritara

Í vikunni sem var áttum við fund með fulltrúum starfsmenntar um brúarsmíði fyrir hjúkrunar- og móttökuritara. Brautin er 71 eining en líklegt er að starfandi fólk í greininni komi hingað frá og með haustinu og ljúki 24 einingum á þremur önnum. Ekki er endanlega búið að ákveða hvaða áfanga fólkið tekur, en kennt verður frá kl. 15-18.

 

Samræmd próf

Nú styttist í samræmt próf í íslensku, en 15 skráðu sig hér í skólanum, en alls þreyta prófið rúmlega 500 manns.

 

Hjúkólfur

10 og 20 ára stúdentum er boðið í hjúkólf og smálkamat föstudaginn 7. maí kl. 17-19. Þetta eru alls um 170 manns sem fá boðsbréf. Kennurum þessara nemenda er að sjálfsögðu boðið líka!

 

Stefnumótunarvinna

Nú eru síðustu forvöð að bóka sig í stefnumótunarvinnuna. Hámarksfjöldi er 27 manns.

 

 

Sölvi Sveinsson