Vikuskammtur
25. október 2004
Umhverfismál
Eins og þið hafið væntanlega tekið eftir er verið
að innleiða ýmsar umbætur í umhverfismálum skólans þessa mánuðina.
Búið er að setja flokkunarkassa fyrir endurvinnslu á gæðapappír inn á öll
vinnuherbergi kennara og á skrifstofur. Einnig hefur
grænni tunnu verið komið fyrir í matsal nemenda fyrir endurvinnslu tímarita og dagblaða. Ræstingafólk sér um að
tæma flokkunarkassana út í gám sem
er staðsettur fyrir vestan skólann. Gámakó ehf
sér um að tæma þann gám og grænu tunnuna í matsal. Þessi flokkun á tímaritum,
dagblöðum og gæðapappír sparar skólanum einhverjar
þúsundir á ári því skólinn borgar minna fyrir flokkaðan úrgang en óflokkkaðan.
Ætlunin er að taka fleiri rekstrarþætti skólans til endurskoðunar með það sama í huga sem er aukin hagkvæmni í rekstri og um leið
tekur skólinn aukna ábyrgð í umhverfismálum.
Bólusetning
Í
dag eru síðustu forvöð að láta bólusetja sig gegn flensu. Guðbjörg verður með
sprautuna á lofti í hádeginu.
Kennarafundur
Næstkomandi
föstudag verður haldinn kennarafundur kl. 13.00. Dagskrá: 1) Rafrænir miðlar á safni og
víðar. Kristín Björgvins hefur framsögu. 2) Framsaga
vinnuhópa um faglega umræðu, mötuneytismál og
vinnuaðstöðu kennara. 3) Önnur mál. Að fundi loknum mun Kristján kenna þeim sem læra vilja betur á Innu.
Könnun á námi og
kennslu
Stýrihópur um
sjálfsmat hélt fund í vikunni sem leið um næstu skref
í sjálfsmati, en það er að tilraunakeyra ákveðnar spurningar og munu nemendur
hjá kennurum í stýrihópnum svara þeim. Síðan verður forritið fínpússað fyrir
vorið og þá verða væntanlega valdar nokkrar deildir
til að ríða á vaðið.
100 ára afmæli rafvæðingar
Þess
er minnst um þessar mundir að 100 ár eru liðin frá því rafvæðing hófst að
nokkru marki. Nemendur í
EÐL 103 fara af því tilefni á sýningu og athöfn í
Smáralind næstkomandi föstudag kl. 10.30 undir stjórn
Kristjáns Þórs.
Fundur með BSRB
Senn skýrast þessi
mál, en allt stefnir í það að umtalsverð aukning verði á kennslu í ensku,
dönsku og spænsku.
Fundur um rekstur íslenskuskólans
Þrír kennarar sem settu upp íslenskuvefinn sóttu um að reka þennan skóla.
Ráðuneytið vill hins vegar að þeir eigi samstarf við fræðslusetur og Framvegis varð fyrir valinu. Kennararnir eru nú að hugsa
sinn gang og næsti fundur er boðaður núna á
miðvikudaginn.
Fartölvuvagnar og
skjávarpar
Fartölvuvagnarnir tveir eru tilbúnir og eru 10 fartölvur
í hvorum vagni.
Eru þeir staðsettir í stofunum M26 og M36 en má nota
vagnana í öllum kennslustofum á hvorri hæð í miðálmunni. Lykillinn og
bókunarlistinn eru í vinnuherbergjum M20 og M30 og þarf að skila lyklinum
þangað að kennslustundinni lokinni. Leiðbeiningar um notkun og frágang
fartölvanna eru innan á hurðinni í fartölvuvögnunum. Gerið ávallt ráð fyrir
þann tíma sem það tekur að koma tölvunum í gang og ganga frá þeim við
skipulagningu kennslunnar.
Allir
skjávarpar í miðálmunni eru núna tengdir.
Eru skjávarpar fastir í lofti núna í öllum kennslustofum
í miðálmunni og auk þess í stofunum A11, A13, A14, A23, A25, V13, V24 og V25.
Auk þess eru skjávarpar á borðum:
1 skjávarpi í kompunni við hliðinni á V23
2 skjávarpar í V16
1 skjávarpi í A16
1 skjávarpi í A26
1 skjávarpi í A27
1 skjávarpi í Síðumúla 6 (Framvegis)
Farið varlega með snúrurnar til að tengja skjávarpa við
tölvu og gangið snýrtilega frá snúrunum að kennslunni lokinni.
Undanþágunefnd
Á heimasíðu
menntamálaráðuneytisins er fróðleg skýrsla um undanþágur og undanþágubeiðnir.
Hvoru tveggju hefur fækkað undanfarin ár og í sumum skólum er enginn á
undanþágu (t.d. Kvennó). Hér eru um 5 stöðugildi á undanþágu.
Og svona fór það
Ég sótti um stöðu
skólastjóra Versló. Mér var síðan boðin staðan síðastliðinn laugardag. Ég mun
því innan tíðar hverfa til þeirra starfa. Þessa ákvörðun langar mig til að ræða
við samstarfsmenn í hádegishléinu.
Sölvi Sveinsson