25. júní 2004
Innritun er lokið
og búið er að skella í lás! Tæplega 700 umsóknir bárust. 536 eldri nemendur
greiddu innritunargjöld, en greiði allir nýir sem seðla hafa fengið verða 905
hausar hér við upphaf haustannar, þar af 160 beint úr 10. bekk. Þessi
innritunartörn var býsna hörð því að mjög margir hringdu eða komu til að ýta á
eftir eða argast yfir því að geta ekki greitt gíróseðil sem búið var að loka af
því að eindagi var liðinn.
Við erum búnir að
liggja heilmikið yfir kennsluskiptingunni til að ná fram sem mestri hagkvæmni.
Alls verða kenndir um 1500 tímar á viku og dreifist nemendur eðlilega í hópa
verða þeir ekki úr hófi fjölmennir.
Auglýst er eftir
umsjónarmanni með kennaranemum, annaðhvort einum eða tveimur saman. Menn hafa
það í hendi sér að sækja um í sameiningu.
Allar stöður
verkstjóra í deildum eru hér með auglýstar lausar til umsóknar og er
umsóknarfrestur til 1. ágúst. Heimilt er að endurráða í stöðurnar. Umsókn skal
senda rafrænt til undirritaðs.
Boðið verður upp
á námskeið fyrir byrjendur í WebCT í haust, auk þess
einkunnabókhald og hljóðsetningu efnis fyrir alla. Einnig er mikilvægt að hafa
námskeið fyrir þá sem auk hljóðs vilja
nota myndræna framsetningu efnis. Samkeppnisaðilar beita þessari tækni
núna og við getum ekki setið eftir!
Kristen M. Swenson hefur verið ráðin Evrópusambandsstjóri, en í því
felst að kynna fyrir starfsfólki hvaða áætlanir styrkja einstök verkefni og að
aðstoða við að sækja um.
Talsverðar
framkvæmdir eru í húsinu um þessar mundir. Mest er unnið í raungreinastofunum
nýju, en pantaðar hafa verið mjög fullkomnar innréttingar frá þýsku fyrirtæki.
Dyr verða sagaðar út úr báðum stofum, ný kerfisloft sett upp og guð má vita
hvað. Þá er unnið að lagfæringum á raflögnum og á þaki austurálmu, auk ýmissa
smálagfæringa.
Júlí er
sumarleyfismánuður. Þá eru allir í fríi meira og minna og skólinn harðlæstur.